Fréttir
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 334 ›
Kaldasti september frá árinu 2005 Septembermánuður var óvenjukaldur á landinu. Meðalhitastig hefur raunar ekki verið jafn lágt frá septembermánuði árið 2005. Innlent 3.10.2024 17:46
Hefja frumkvæðisathugun á Heilsugæslunni Persónuvernd hefur ákveðið að hefja frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga í sameiginlegum sjúkraskrárkerfum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 3.10.2024 17:08
Segir nákvæmlega ekkert að óttast við atkvæðagreiðsluna Formaður Viðreisnar segir þjóðina skulda unga fólkinu í landinu að fá tækifæri til að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Hún horfi til þess þegar Bretland yfirgaf Evrópusambandið í andstöðu við vilja ungs fólks í því samhengi. Innlent 3.10.2024 16:39
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18
Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli Arnar Björn Gíslason, 26 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Arnar Björn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember í fyrra og var refsingin staðfest í Landsrétti í dag. Innlent 3.10.2024 15:29
Alelda bíll á Reykjanesbraut Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni en ekki hefur verið tilkynnt um nein slys á fólki. Innlent 3.10.2024 15:00
Leita tveggja vegna banaslyssins á Sæbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja ökumanna vegna banaslyssins á Sæbraut um síðustu helgi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að nauðsynlega þurfi að ná tali af þeim vegna rannsóknarinnar á slysinu. Innlent 3.10.2024 14:34
Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Tilkomumikill hringmyrkvi var sýnilegur á sunnanverðri Suður-Ameríku í gær. Margir komu saman til að sjá sólmyrkvann. Erlent 3.10.2024 13:46
Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku. Innlent 3.10.2024 13:31
Áfram á bak við lás og slá vegna andláts hjónanna Fallist hefur verið á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 3.10.2024 13:25
Umferðarljósin rafmagnslaus vegna rafmagnstruflana Umferðarljós við Bústaðaveg og við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar biluðu urðu rafmagnslaus í morgun klukkan 08:50 og í gær klukkan 12:25 vegna rafmagnstruflana í orkuveri í Svartsengi og í gær vegna kerfisbilunar í Landsneti. Innlent 3.10.2024 13:00
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3.10.2024 12:13
Þóra Jóhanna nýr yfirdýralæknir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis. Hún tekur við af Sigurborgu Daðadóttur, sem var skipuð yfirdýralæknir árið 2013, fyrst kvenna. Innlent 3.10.2024 12:04
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3.10.2024 12:02
Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Gestum Vesturbæjarlaugar gremst mörgum að kynjaskiptir sánuklefar heyri nú sögunni til í lauginni. Forstöðumaður segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að loka karlasánunni, sem var orðin fúin og ógeðsleg. Þá stemmi kynjasameiningin vonandi stigu við óviðeigandi hegðun sem hafi verið erfitt að uppræta. Innlent 3.10.2024 12:02
Sögðu upp fleiri samningum í kjölfar úrskurðarins Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur sagt um samningum við Samgöngustofu, Fluglæknasetur og KSÍ, í kjölfar úrskurðar Persónuverndar um að ekki hafi verið heimilt að veita Samgöngustofu aðgang að sjúkraskrám. Forstjóri heilsugæslunnar segir boltann nú hjá yfirvöldum, sem þurfi að búa til lagaramma sem virkar. Innlent 3.10.2024 12:02
Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Finnskur nýnasisti sem stakk tvö börn í verslunarmiðstöð í Oulu í Finnlandi í sumar hafnaði því að hann hefði verið knúinn áfram af kynþáttahatri þegar réttarhöld hófust yfir honum í vikunni. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Erlent 3.10.2024 11:50
Ánægð með að stjórnvöld viðurkenni mönnunarvandann Efling undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem nær til félagsmanna á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum. Formaður Eflingar fagnar því að stjórnvöld viðurkenni loks mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. Innlent 3.10.2024 11:50
Vaxtalækkun, nýr kjarasamningur og lokað á sjúkraskrár Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um Arion banka sem hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Rætt verður við formann Neytendasamtakanna, sem fagnar þessu, en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá. Innlent 3.10.2024 11:40
Rafmagnsleysi sums staðar fram á kvöld Sjötíu mínútur þurfti til að byggja upp flutningskerfi Landsnets eftir að sló út á stórum hluta landsins rétt fyrir klukkan eitt í gær. Fólk í Mývatnssveit var sumt hvert rafmagnslaust fram á kvöld. Innlent 3.10.2024 11:31
Herbergi fylltist af vatni upp að hurðarhúni Umfangsmikill leki varð í fjölbýlishúsi að Maríubakka í Breiðholti í morgun. Herbergi í kjallara hússins fylltist af vatni upp að hurðarhúni. Innlent 3.10.2024 11:18
Veikindi flugstjóra settu óvænt strik í flugáætlun Atlanta-þotu Áhöfn Boeing 747-þotu Air Atlanta, TF-AMI, flaug með hátt í eitthundrað tonn af lyfjum frá Evrópu til Suður-Afríku. Eftir lendingu í Jóhannesarborg þurfti starfsfólk félagsins í skyndi að bregðast við óvæntum veikindum flugstjóra. Innlent 3.10.2024 10:48
Kona tveggja flokka í Samtalinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Hún var vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins og varaformaður flokksins um tíma en tók þátt í stofnun Viðreisnar sem hún hefur verið í forystu fyrir í sjö ár. Innlent 3.10.2024 10:42
Ekið á ungan dreng á hlaupahjóli Bíl var ekið á ungan dreng á leið í skólann rétt fyrir klukkan átta í morgun. Hann var fluttur á slysadeild í sjúkrabíl. Meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Hann var á hlaupahjóli. Innlent 3.10.2024 10:20
Meiri stuðningur við Borgarlínu í Reykjavík en annars staðar Tæpur helmingur Reykvíkinga er hlynntur lagningu Borgarlínu en aðeins rúmlega þriðjungur íbúa nágrannasveitarfélaganna. Um það bil þriðjungur er andvígur viðbótinni við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu í nýrri könnun. Innlent 3.10.2024 10:08
Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Ísraelar gerðu í nótt árás á meinta vopnageymslu við hlið rússneskrar herstöðvar í Sýrlandi í nótt. Rússar reyndu að skjóta ísraelskar stýriflaugar niður en engin þeirra hæfði herstöðina sjálfa. Erlent 3.10.2024 09:59
Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Verkfræðingar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA slökktu á einu mælitækja Voyager 2, næstvíðförlasta geimfars sögunnar, til þess að spara orku og framlengja líftíma þess í síðasta mánuði. Farið hefur þegar verið í geimnum í hátt í hálfa öld. Erlent 3.10.2024 09:50
Heilsugæslan lokar fyrir aðgengi Samgöngustofu að sjúkraskrám Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur lokað fyrir aðgengi heilbrigðisstarfsfólks hjá Samöngustofu að sjúkraskrám. Þetta er gert samkvæmt fyrirmælum landlæknisembættisins í kjölfar úrskurðar Persónuverndar. Innlent 3.10.2024 09:22
Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu „Hvað með það?“ er Donald Trump sagður hafa svarað þegar honum var sagt að Mike Pence, varaforseti hans, hefði þurft að flýja undan æstum múgi sem réðst á bandaríska þinghúsið. Þetta kemur fram í gögnum úr rannsókn á árásinni sem voru lögð fram í gær. Erlent 3.10.2024 09:01
Minna Íslendinga búsetta erlendis og vilja kjósa á að skrá sig Þjóðskrá hefur minnt Íslendinga sem búsettir eru erlendis og vilja vera tekna á kjörskrá fyrir tímabilið 1. desember 2024 til 1. desember 2028 að senda inn umsókn um slíkt fyrir 1. desember næstkomandi. Þingkosningar munu að óbreyttu fara fram á næsta ári. Innlent 3.10.2024 08:49