Handbolti

Fimmtíu bestu: Svifbergur
Sigurbergur Sveinsson endaði í 2. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Þýsku meistararnir höfðu betur í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar
Þýskalandsmeistarar Magdeburg unnu öruggan sjö marka sigur er liðið tók á móti ungversku meisturunum í Veszprém í Íslendingaslag Meistaradeildarinnar í handbolta í kvöld, 32-25.

Þrettán íslensk mörk er Leipzig vann Íslendingaslaginn með minnsta mun
Viggó Kristjánsson var næst markahæsti leikmaður Leipzig með sex mörk er liðið vann nauman eins marks sigur gegn Íslendingaliði MT Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 28-29.

Landsliðsmaður í handbolta glímir við kulnun
Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson er kominn í leyfi frá handbolta um óákveðinn tíma. Hann er kominn með sterkt einkenni kulnunar.

Fimmtíu bestu: Börsungahrellirinn
Halldór Ingólfsson endaði í 3. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

Aron Pálmarsson byrjaður að laða að nýja leikmenn í FH-liðið
Landsliðsmönnunum fjölgar sem munu spila með FH í Olís deild karla í handbolta á næstu leiktíð en í gær var tilkynnt um endurkomu markvarðarins Daníels Freys Andréssonar.

Erlingur: Ætla að taka mér hlé frá hliðarlínunni
Erlingur Richardsson var ánægður með sigurinn gegn Selfyssingum en taldi margt mega betur fara.

Umfjöllun: KA - Afturelding 32-35 | Afturelding í Höllina eftir framlengdan spennutrylli
Afturelding tryggði sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handknattleik eftir sigur á KA í framlengdum leik fyrir norðan.

Umfjöllun og myndir: Haukar - Hörður 37-30 | Haukar í undanúrslit
Haukar unnu sjö marka sigur á Herði og eru komnir í undanúrslit Powerade-bikarsins í handbolta. Þrátt fyrir að hafa verið undir allan leikinn þá sýndi Hörður gæði inn á milli og voru aðeins einu marki undir í hálfleik. Haukar voru sterkari á svellinu í seinni hálfleik og unnu að lokum 37-30.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Selfoss 33-30 | Sigur í fyrsta leik Eyjamanna í rúma tvo mánuði
Eftir rúmlega tveggja mánaða hlé spilaði ÍBV loks leik í Olís-deild karla þegar Eyjaliðið fékk nágranna sína frá Selfossi í heimsókn. Heimamenn unnu góðan þriggja marka sigur, 33-30.

Andri Snær: „Þetta er engin dönsk pulsa, þetta er alvöru leikmaður!“
Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þór, gat ekki annað en verið sáttur með sigur síns lið gegn Haukum í Olís deild kvenna í leik sem fram fór í KA-heimilinu nú í kvöld.

Umfjöllun: ÍR - Fram 23-34 | Fram fór þægilega áfram í undanúrslit
Fram vann sannfærandi 23-34 sigur þegar liðið sótti ÍR heim í Skógarsel í átta liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta í kvöld.

Viktor í sigurliði Nantes gegn Elverum en Aron og félagar töpuðu
Aron Pálmarsson og félagar í Álaborg töpuðu á útivelli gegn Kielce í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld. Þá var Íslendingaslagur þegar Elverum tók á móti Nantes.

Umfjöllun og viðtal: KA/Þór - Haukar 32-28 | Mikilvægur sigur hjá Akureyringum
KA/Þór lyfti sér upp fyrir Hauka í Olís deild kvenna með 32-28 sigri gegn þeim í KA-heimilinu nú í kvöld. Heimakonur komust mest 9 mörkum yfir í síðari hálfleik en Haukar náði að laga stöðuna og munurinn að lokum fjögur mörk.

Sigvaldi og Janus öflugir í stórsigri Kolstad
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Janus Daði Smárason og félagar þeirra í Kolstad unnu stórsigur á Sandnes í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Tryggvi Garðar frá í nokkrar vikur vegna meiðsla
Tryggvi Garðar Jónsson leikmaður Íslandsmeistara Vals í handbolta verður frá keppni í nokkrar vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Flensburg í síðustu viku.

Yfir þrettán hundruð mörk verið skoruð í deildinni síðan Eyjamenn spiluðu síðast
Þremur fyrstu deildarleikjum Eyjamanna eftir HM-frí hefur verið frestað sem þýðir að Eyjaliðið hefur ekki spilað leik í Olís deild karla síðan 3. desember á síðasta ári.

Fimm mismunandi Valsmenn markahæstir í Evrópuleikjum liðsins í vetur
Valsmenn unnu í gær sinn þriðja sigur í Evrópudeildinni á þessu tímabili og eiga enn góða möguleika á því að komast áfram í sextán liða úrslitin.

Logi Geirs og Arnar Daði rifust um rauða spjaldið
Haukarnir misstu frá sér stig í leik á móti Stjörnunni í síðustu umferð Olís deildar karla eftir að Stjörnumenn fengu vítakast á silfurfati á síðustu sekúndum leiksins frá einum reyndasta leikmanni Hauka.

Guðmundur Hólmar á leið í Hauka
Handboltamaðurinn öflugi Guðmundur Hólmar Helgason mun að öllum líkindum spila með Haukum frá og með næstu leiktíð.

Fimmtíu bestu: Mundu eftir prótótýpunni
Ásgeir Örn Hallgrímsson endaði í 4. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í handbolta á þessari öld.

FH endurheimtir annan landsliðsmann
Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson kemur heim í Kaplakrika í sumar og hefur skrifað undir samning við FH sem gildir til tveggja ára.

Hafði áhyggjur af því að þjálfarinn myndi fá hjartaáfall og deyja á bekknum
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, fer ýtarlega yfir feril sinn á heimasíðu evrópska handknattleikssambandsins í grein sem birtist fyrr í dag. Þar minnist hann meðal annars tíma síns hjá Rhein-Neckar Löwen þegar Daninn Nikolaj Jakobsen stýrði liðinu.

„Þetta eru fáránleg forréttindi“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var eðlilega stoltur af sínu liði eftir öruggan sex marka sigur gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Með sigrinum lyftu Valsmenn sér upp í þriðja sæti B-riðils og eiga enn góðan möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.

Umfjöllun og myndir: Valur - Benidorm 35-29 | Draumurinn um 16-liða úrslit lifir góðu lífi
Valur vann öruggan sex marka sigur er liðið tók á móti Benidorm í áttundu umferð riðlakeppninnar í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld, 35-29. Með sigrinum stukku Valsmenn upp í þriðja sæti B-riðils og eiga góða möguleika á að vinna sér inn sæti í 16-liða úrslitum.

Teitur skoraði tvö í öruggum Evrópusigri
Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir þýska stórliðið Flensburg er liðið heimsótti PAUC til Frakklands í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Teitur og félagar unnu öruggan átta marka sigur, 21-29, en þetta var fjórði tapleukur PAUC í keppninni í röð.

Ystad bjargaði stigi gegn Ferencváros
Sænska liðið Ystads bjargaði stigi með seinasta skoti leiksins er liðið tók á móti Ferencváros í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 35-35, en stigið lyftir Ungverjunum upp fyrir Valsmenn í fjórða sæti B-riðils.

Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 30-24 | Sannfærandi Eyjasigur gegn Stjörnunni
ÍBV og Stjarnan sátu í 2. og 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta fyrir uppgjör liðanna í Eyjum í kvöld. Frábær síðari hálfleikur skóp sannfærandi sigur Eyjastúlkna, 30-24.

„Það eru skrambi margar dósir, Gaupi“
Það er í mörg horn að líta hjá Valsmönnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta karla í kvöld. Guðjón Guðmundsson kíkti á Hlíðarenda og fylgdist með undirbúningnum.

Hópurinn sem hitar upp fyrir slaginn um HM-sæti
Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, hefur valið tuttugu leikmenn til æfinga fyrir tvo leiki við B-landslið Noregs sem fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði í byrjun mars.