Skoðun

Slæm stjórnsýsla heilbrigðismála - dauðans alvara
Varla líður sú vika án þess að fólk sem hefur þurft að leita á bráðamóttöku Landspítala stígi fram og lýsi erfiðri reynslu sinni af þeirri meðferð sem það fékk þar. Þessar frásagnir eru þó aðeins toppurinn á ísjakanum því flestir þekkja til svipaðra tilvika eða hafa jafnvel lent sjálfir í því sama.

Eldra fólk á betra skilið
Flokkur fólksins var stofnaður árið 2016, til að berjast gegn fátækt. Með réttlæti og sanngirni að leiðarljósi í málflutningi sínum, náði flokkurinn sínum fyrstu sætum á Alþingi árið 2017. Fyrsta frumvarp okkar á Alþingi var um afnám skerðinga á ellilífeyri vegna atvinnutekna eldri borgara - aðgerð sem við teljum óumdeilanlega vera spurningu um virðingu og réttlæti gagnvart eldra fólki.

Fimmtíu og sex
Íbúar í Árneshreppi eru 53. Þótt Árneshreppur sé eitt fámennasta sveitarfélag landsins þá erum við væntanlega öll sammála um að fólkið sem þar býr skipti máli fyrir íslenskt samfélag. Venjulegt, harðduglegt íslenskt fólk. Feður, mæður, bræður, systur, ömmur og afar.

Börn laga ekki beinbrot
Sem barn með ógreint ADHD átti ég það til að týna öllu. Íþróttatöskur, handklæði, lyklar, síminn - nefndu það og ég týndi því. Þegar ég var níu ára týndi ég körfuboltaskónum mínum, korter í æfingu. Ég lét mig hafa það og mætti á æfingu, skólaus.

Sá „óháði“ kemur til byggða
Líkt og jólasveinar koma gjarnan til byggða í desember, þá birtist ávallt hinn „óháði“ fræðimaður prófessor emeritus Stefán Ólafsson í undanfara þingkosninga. Ólíkt jólasveinunum, sem alla jafna leika á alls oddi, hefur „óháði“ fræðimaðurinn allt á hornum sér. Að minnsta kosti hvað Sjálfstæðisflokkinn varðar.

Vegið að framtíð ungs vísindafólks á Íslandi
Við, undirritaðir doktorsnemar og nýdoktorar, lýsum yfir miklum áhyggjum af endurteknum fyrirhuguðum niðurskurði á fjárveitingum til Rannsóknarsjóðs í fjárlagafrumvarpi 2025. Stefnt er að 100 milljóna króna niðurskurði fyrir næsta ár, ofan á tæplega 500 milljón króna niðurskurð árið áður

Trúðslæti eða trúverðugleiki
Á næstu vikum fara fjölmiðlar á fyllerí með hópi fólks sem ætlar að æsa sig hvert gegn öðru, ætlar að fara fram með ásakanir, svívirðingar, afhjúpanir, vandlætingar, upphrópanir og áfellsidóma – og margt, margt fleira, um leið og þetta fólk lofar okkur kjósendum öllu fögru, einmitt öllu því sem okkur hefur svo lengi langað til að heyra, svo lengi óskað að komið yrði í framkvæmd – já, einmitt núna lofa þau okkur að þetta muni allt verða að veruleika.

Rekin út fyrir að vera kennari
Það eru grundvallarréttindi vinnandi fólks að beita verkfalli til að knýja á um kjarabætur. Því vakti víða athygli þegar kennarar komu saman að morgni 29. október til að tryggja að verkfall kennara á leikskólanum Ársölum í Skagafirði væri ekki brotið að fyrirskipun sveitarfélagsins Skagafjarðar. Það hefur hins vegar ekki verið fjallað mikið um aðdraganda verkfallsbrotanna eða eftirmála þeirra.

Lögreglumenn samningslausir mánuðum saman og án verkfallsréttar
Nú þegar fundi Norðurlandaráðs er nýlokið þar sem lögreglumenn voru í áberandi og í nauðsynlegu hlutverki gefst tækifæri til að vekja athygli á stöðu lögreglumanna og kjörum þeirra. Í dag hafa lögreglumenn nú verið án nýs kjarasamnings í um sjö mánuði.

Hver vill kenna?
Íslenska menntakerfið er í miðri krísu þar sem núverandi verkfall kennara endurspeglar dýpri vanda sem snýr ekki einungis að launakjörum heldur að heildarsýn menntakerfisins. Kennarar krefjast réttlátra launa sem endurspegla gildi þeirra í samfélaginu – því hver myndi vilja gefa sig alla fyrir starf sem launar ekki samkvæmt kröfum nútímans?

Við þurfum að tala um Bálstofuna
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, mætti í viðtal í Þetta helst á Rás 1 miðvikudaginn 6. nóvember. Þar var hann spurður út í mengunarvaldandi starfsemi Bálstofunnar í Fossvogi sem er að valda börnum og starfsfólki í nærliggjandi leikskólum og skólum gríðarlegum ama og er hættuleg heilsu þessara barna sem anda skaðlegum svörtum reyk ofan í litlu lungun sín.

Vanvirðing við einkaframtakið og verðmætasköpun
Við þekkjum flest öll harðduglegt vinnandi fólk í iðngreinum: Gumma pípara, Sigga smið eða Önnu hársnyrti. Þau hafa tekið mikla áhættu og ákveðið að fara í eigin rekstur þar sem mánaðarlegur launatékki er ekki tryggður.

Samfylkingin ætlar ekki að hækka tekjuskatt
Það er sama hvar maður kemur að tali við kjósendur um hvaða mál liggja þeim á hjarta í komandi kosningum. Öll nefna húsnæðismál, efnahagsmál og heilbrigðismál. Það er samhljóma þeim samtölum sem Samfylkingin hefur átt við fólkið í landinu á liðnum tveimur árum.

Hvað eiga eldri borgarar að kjósa?
Almennt fá málefni eldri borgara takmarkaða athygli í stjórnmálaumræðunni nema þegar kemur að kosningum. Þegar frambjóðendur eru komnir í kosningaham eru kjör og aðstæður aldraðra dregin fram í dagsljósið og flokkarnir keppast við að benda á það óréttlæti sem þessi hópur er beittur.

Við erum að ná árangri
Íslensku menntaverðlaunin heiðra þau sem eru leiðandi í íslensku skólasamfélagi. Einstökum fyrirmyndum er veitt sú viðurkenning sem þau eiga skilið og mikilvægu framlagi þeirra til menntamála á Íslandi er fagnað.

Verðum að rannsaka hvað gerðist í Covid
Lýðræðisflokkurinn mun beita sér fyrir því að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd til að rannsaka viðbrögð stjórnvalda þegar Covidflensan reið hér yfir.

Ég og amma mín sem er dáin
Ég átti einu sinni ömmu. Sonur minn kallar hana „ömmu mína sem er dáin“ sem hún vissulega er. Hún dó áður en hann fæddist en það er glæsileg mynd af henni á heimili okkar og hún er stundum rædd.

Spegill eða stjórntæki? Hlutverk skoðanakannana og almenningsálits í stefnumótun og stjórnmálum
Skoðanakannanir gegna lykilhlutverki í íslenskum stjórnmálum. Þær virka sem spegill sem endurspeglar vilja og viðhorf kjósenda en eru einnig notaðar sem áhrifaríkt stjórntæki fyrir stjórnmálaflokka sem vilja aðlaga stefnu sína að síbreytilegum aðstæðum og væntingum almennings.

Sagnaarfur Biblíunnar
Biblían er safn rita sem lagt hefur grundvöllinn að trúarlífi, siðferðis- og lagaumhverfi og menningararfi Íslendinga frá örófi alda og án þekkingar á henni erum við sem samfélag illa í stakk búin til að takast á við viðfangsefni samtímans.

Með baunabyssu í kennaraverkfalli
Verkfall er síðasta úrræði launþega í kjarabaráttu. Verkfall þarf því að bíta ef það á að hafa áhrif.

Hver tilheyrir hverjum?
Árlega gefur Landlæknisembættið út tölulegar upplýsingar hvar getur m.a. að líta tölur um lyfjatengd andlát. Fjöldi þeirra sem létu lífið árið 2023 á Íslandi af lyfjatengdum orsökum er hærri en nokkru sinni fyrr eða alls 56 einstaklingar. Árið 2022 var fjöldi þeirra sem lét lífið af þessum sökum 35 - við erum því að horfa upp á aukningu úr 35 í 56, hátt í 40% aukningu sem er ævintýraleg aukning. Og þótt sveiflur milla ára séu nokkrar þá hefur þessi tala aldrei verið svona há, aldrei nokkurn tímann. Til samanburðar má nefna að 8 einstaklingar létu lífið í umferðinni árið 2023 en árið þar á undan voru þeir 9.

Það þarf meiri töffara í okkur
Við kennarar þurfum að fá okkur góðan slurk af hroka. Að tala um hvað við erum miklir naglar. Kennarastarfið er gífurlega töff starfsvettvangur. Þú þarft að vera með bein í nefinu til að endast. Við þurfum að koma því á dagskrá í almennri umræðu.

Unga fólkið og frjósemi
Hefur þú velt fyrir þér frjósemi þinni? Ef svo er á hvaða aldri varst þú þegar þessar pælingar þínar fóru af stað? Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur frjósemi aldrei verið minni á Íslandi frá því að mælingar hófust.

Tryggjum frelsi til handfæraveiða – eflum sjávarbyggðirnar
Við vitum að krókaveiði strandveiðibáta ógnar ekki fiskistofnum. Skortir því rök fyrir takmörkun á atvinnufrelsi íbúa sjávarbyggðanna til handfæraveiða.

Verja þarf friðinn
Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Svandís Svavarsdóttir, lýsti því yfir á dögunum í þættinum Spursmál á mbl.is að öryggi Íslands væri betur tryggt utan NATO en innan varnarbandalagsins og kallaði eftir úrsögn landsins úr því. Ísland ætti að vera friðsælt ríki og rödd friðar í heiminum. Vafalaust geta flestir tekið undir þetta síðastnefnda en til þess að svo megi vera þarf hins vegar að verja friðinn.

Mannsæmandi lífeyrislaun strax
Árið 1988 voru lægstu ellilífeyrislaun skattlaus og fólk á lífeyrislaunum átti jafnvel afgang af persónuafslættinum upp í lífeyrissjóðslaunin. Ef sama kerfi væri enn við lýði í dag; væru allra lægstu ellilífeyrislaun um 450.000 kr. á mánuði eftir útborgun. Í dag eru næst lægstu greiðslur hins vegar aðeins 333.194 kr. fyrir skatta og skerðingar, sem er rúmum 120 þúsund krónum undir lágmarkslaunum á vinnumarkaði.

Munu bara allir fá dánaraðstoð?
Þann 29. október sýndi RÚV Kveiksþátt um dánaraðstoð, sem vakti viðbrögð úr heilbrigðisstéttum. Fyrst má nefna viðtal við Steinunni Þórðardóttur, formann Læknafélagsins, í Speglinum.

Hvað er Arne Slot þjálfari Liverpool að gera rétt?–vangaveltur frá sálfræðingi
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með Arne Slot og Liverpool á þessari leiktíð, sérstaklega þegar horft er til þess að hann er að taka við af Jurgen Klopp sem var afar vel metinn af bæði leikmönnum og stuðningsmönnum liðsins.

Billy bókahilla og börnin mín
Ég hef oft hugsað um það hvað það hlýtur að vera krefjandi starf að vera kennari. Ég hugsaði það þegar bekkjarsystkini mín grættu dönskukennarann í áttunda bekk, ég hugsaði það þegar ég óskaði grunnskólakennaranum mínum til hamingju með að vera ólétt - þremur árum of seint og ég hugsaði það þegar ég keyrði dætur mínar í skólann í morgun.

Á að banna rauða jólasveininn?
Það er virkilega ánægjulegt að þrumuræða Sigurðar Inga í leiðtogaumræðum á RÚV hafi vakið fólk til umhugsunar um hvert umræðan um útlendingamál er komin, þar sem öllu er blandað saman.