Hlýr, votur og dimmur 13. október 2005 14:44
Nýliðinn september var nokkuð hlýr, en úrkomusamt var og fremur sólarlítið. Úrkoma í Reykjavík mældist 40 prósentum meiri en í meðal septembermánuði. Meðalhitinn í höfuðborginni var hins vegar nokkuð fyrir ofan meðallag, eða níu gráður, og er það þrítugasti mánuðurinn í röð þar sem hiti er fyrir ofan meðallag. Á Akureyri var meðalhitinn 8,8 gráður, sem er 2,6 gráðum meira en í meðalári og þar var úrkoma tæplega 60 prósentum meiri en í meðal septembermánuði. Eftir sólríkt sumar dró sólin sig að nokkru leyti í hlé í september og voru sólskinsstundir í Reykjavík alls 103, eða 22 færri en í meðalári, og á Akureyri voru þær alls 72, eða fjórtan undir meðallagi. Sumarið (júní til september) var hlýtt að sögn Veðurstofunnar. Í Reykjavík var það hið fimmta hlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga, en árin 1939, 1941, 1958 og 2003 voru sumrin hlýrri en í ár. Sumarið var einnig sólríkt með eindæmum og mældust sólarstundir í Reykjavík 753, sem gerir sumarið að níunda mesta sólarsumri síðan mælingar hófust. Á Akureyri voru sólskinsstundirnar 682 og hafa þær aðeins fimm sinnum orðið fleiri þar nyrðra að sumarlagi.
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira