Sport

Utah Jazz fær þriðja valréttinn

Strax er farið að draga til tíðinda í nýliðavalinu í NBA deildinni sem fram fer í kvöld, en Utah Jazz gerði nú rétt í þessu stór skipti við Portland Trailblazers og tryggðu sér þriðja valréttinn í kvöld, með það fyrir augum að ná í einn hinna frambærilegu leikstjórnenda sem eru í boði. Skiptin voru þannig að Portland lét Utah fá þriðja valréttinn en fá í staðinn val númer 6, 27 og valrétt í fyrstu umferðinni í nýliðavalinu á næsta ári. Lið Utah Jazz sárvantar leikstjórnanda og ákvað því að tjalda öllu til að næla sér einn hinna frambærilegu leikstjórnenda sem eru í boði með allra fyrstu valréttunum. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir lið Jazz, en ár og dagar eru síðan liðið hefur valið svona snemma í nýliðavalinu, enda árangur liðsins síðustu tvo áratugi með því betra sem gerist í deildinni. Þessi skipti eru þó aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal í kvöld, því nýliðavalið í ár er talið eitt hið óútreiknanlegasta í mörg ár og fjöldi liða íhugar einhversskonar skipti til að styrkja sig fyrir komandi átök.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×