Sport

LeBron James laus af spítala

Undrabarnið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers losnaði af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hafa gengist undir fjölda rannsókna vegna sársauka sem hann hafði fyrir brjósti. Skelfing greip um sig meðal forráðamanna liðsins þegar tíðindin bárust, en James hefur nú verið að fullu útskrifaður. Meinið er sagt hafa verið bólgur í vöðvum umhverfis lungun og því ætti James að verða klár í slaginn aftur fljótlega með liðinu. James er aðeins tvítugur og er talinn eitthvert mesta efni sem komið hefur fram í körfuboltanum á síðustu árum eða áratugum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×