Steve Irwin allur 4. september 2006 21:06
Ástralski "krókódílamaðurinn" Steve Irwin lést við köfun undan ströndum Ástralíu í dag. Skata stakk hann í hjartastað. Irwin var heimsfrægur fyrir vinsæla dýralífsþætti sína þar sem hann lagði líf sitt oftar en ekki hættu í samskiptum sínum við krókódíla og önnur hættuleg dýr. Steve Irwin var sjónvarpsáhorfendum um allan heim að góðu kunnur. Hann lét sig ekki muna um að fóðra krókódíl með annari hendi og barnið sitt í hinni. Það gerði hann fyrir framan sjónvarpsáhorfendur og hlaut bágt fyrir. Irwin var mikill áhugamaður um náttúruvernd og óþreytandi talsmaður krókódíla. Stundum þótti hann full glæfralegur framkomu við villidýrin. Hann meðhöndlaði krókódíla, hættulegar köngulær og snáka af virðingu en með hæfilegum gáska. Irwin var í dag að kafa við Batt rifið undan ströndu Queensland í norðaustur Ástralíu og var að taka upp sjónvarpsþátt um hættulegustu dýr í heimi. Hann synti of nálægt einni skötunni og hún stakk hann í hjartastað með hala sínum. John Howard forsætisráðherra Ástralíu sagði um Irwin að hann hefði verið einstakur maður og verið hjartfólginn bæði Áströlum og fólki um allan heim. Blóm og kransar streymdu í dag til dýragarðsins í Queensland í Ástralíu til minningar um Steve Irwin. Ökumenn þeyttu bílflautur til heiðurs honum er þeir óku þar hjá. Irwin lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn.
Erlent Fréttir Mest lesið Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Ófremdarástandi lýst: Þrír stjórar í leyfi, einelti og hrun í starfsánægju Innlent Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Innlent Hafa fundið Cessna-vélina Erlent Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Innlent Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Erlent Mildari spá í kortunum Veður Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Erlent Fleiri fréttir Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Bankaerfingi greiðir laun hermanna meðan ríkisstofnanir eru lokaðar Gómuðu aftur manninn sem þeir slepptu fyrir mistök Tveir handteknir vegna Louvre ránsins Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimmtán klukkustundir Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Ýjar að annarri atrennu að forsetaembættinu Vinstrikonan umdeilda vann sannfærandi sigur á Írlandi Fyrrverandi drottning Taílands er látin Segir Trump vilja nýtt „eilífðarstríð“ Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Fundu verksmiðju fyrir ólögleg þyngdarstjórnunarlyf Nota 130 milljón dala gjöf til að greiða hermönnum laun Sjá meira