Metnir sem lífshættulegir bílar Guðjón Helgason skrifar 2. nóvember 2007 18:45
Toyota Hilux pallbílar eru lífshættulegir að mati sænsks bílablaðs. Bifreiðin fer nærri því að velta í ökuprófi. Samskonar próf olli vandræðum fyrir A-bíl Mercedez Benz fyrir áratug. Það er sænska bílablaðið Teknisk Värld sem gerir þetta svokallaða elgspróf. Það hefur löngum verið notað í Svíþjóð til að kanna hversu vel er hægt að víkja bifreiðum frá óvæntri hindrun - svo sem eins og elg á miðjum veginum. 1997 stóðst A-bíll Mercedez Benz það ekki og olli það töluverðum vandræðum sem kostuðu framleiðendur nokkuð fé. Blaðið gerði á dögunum ýmis próf á nokkrum pallbílum - þar á meðal Mitsubishi L tvö hundruð og Toyota Hilux. Elgsprófið gekk nokkuð vel þegar Mitsubishi bifreiðinni var ekið um æfingasvæðið. Þegar kom að Toyota Hilux bifreiðinni var annað upp á teningnum. Hún fór ansi nálægt því að velta á hliðinna þar sem hún fór um á tæplega sextíu kílómetra hraða. Það er mat blaðamanna hjá Teknisk Värld að Hilux bifreiðarnar séu lífshættulegur fararskjóti miðað við prófið. Talsmaður Toyota í Svíþjóð segir að niðurstöðuna verði að taka alvarlega. Toyota Hilux bílar eru vinsælir víða um heim. Í fyrra voru 236 slíkir seldir á Íslandi og 464 það sem af er þessu ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Fleiri fréttir Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Sjá meira