Friðrik klár í slaginn á ný 25. maí 2008 20:26 Friðrik Stefánsson er á góðum batavegi
Miðherjinn Friðrik Stefánsson hjá Njarðvík hefur fengið þær góðu fréttir að hann megi byrja að æfa körfubolta á ný. Friðrik gat ekki leikið með Njarðvíkingum í úrslitakeppninni í vor vegna hjartagalla. Friðrik fór í aðgerð vegna hjartaflökts í vetur og fékk fljótlega grænt ljós á að byrja að spila aftur, en veikindi hans tóku sig upp á ný í vor og því varð hann að sleppa úrslitakeppninni. Óttast var að Friðrik þyrfti jafnvel að leggja skóna á hilluna. Friðrik fór í aðra aðgerð fyrir nokkru og fór í skoðun hjá læknum fyrir helgina. Útkoman var mjög góð og vonast Friðrik nú til að geta spilað áfram með Njarðvíkingum á komandi vetri. "Ég er búinn að fá grænt ljós á að halda áfram þangað til annað kemur í ljós og töluvert fyrr en ég bjóst við. Það er reyndar ekki útilokað að eitthvað svona komi fyrir aftur, en vonir standa til um að þeir séu komnir fyrir þetta. Það eiga að vera 90% líkur á því að þetta sé orðið gott, en annars eru víst til einhverjar 200 tegundir af þessu meini svo það er kannski erfitt að segja til um það," sagði landsliðsmaðurinn í samtali við Vísi í kvöld. Friðrik segist hafa verið léttur í spori þegar hann fór frá lækninum fyrir helgina. "Það var gott að fá þessi góðu tíðindi og það hefði verið afar erfitt að kyngja því að þurfa að ljúka ferlinum með þessum hætti. Ég var farinn að sjá það fyrir mér að þurfa að fara að spila golf," sagði Friðrik léttur í bragði. Ljóst er að Friðrik og félagar í Njarðvík fá nýjan þjálfara næsta vetur og reiknað er með að það verði Valur Ingimundarson sem tekur við liðinu. Valur mun væntanlega skrifa undir samning við suðurnesjamenn eftir helgina.
Dominos-deild karla Mest lesið Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ Fótbolti Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Fótbolti Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Fótbolti Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Sport Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira