Dönnuð stemming 31. júlí 2008 06:00 Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila í Þrastalundi.
Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila á miðnæturtónleikum í Þrastalundi um verslunarmannahelgina, 1. og 2. ágúst. Boðið verður upp á karnivalstemningu í lundinum, sprell yfir daginn fyrir fjölskyldur, hlaðborð að hætti hússins og dansskemmtun fyrir fullorðna. „Við verðum að spila þetta Milljónamæringaprógram, mambó djambó músík og íslenska slagara frá síðustu öld," segir Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font. „Við erum með slatta af íslenskum slögurum, sjarmerandi íslenska gullaldarmúsík. Þetta er ekki beinlínis hugsað sem sveitaball heldur meira sem tónleikar. Við erum að stíla á þessa gríðarstóru sumarbústaðabyggð sem er þarna allt í kring. Meiningin er að fólk geti komið þarna og fengið sér drykk við lifandi tónlist, frekar en að eitthvað gargandi sveitaball. Annars ræðst þetta bara, það er oft erfitt að stjórna því. Þetta gæti leyst upp í eitthvert svakalegt partí þess vegna, maður bara veit það ekki." Sætaferðir verða um sumarbústaðasvæðið á klukkutíma fresti frá klukkan sex til klukkan fjögur um nóttina. - kbs
Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira