Enn vinna Boston og Cleveland 13. desember 2008 11:48 LeBron James var tekinn föstum tökum í nótt
Sigurganga Boston Celtics og Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hélt áfram í nótt þegar ellefu leikir voru á dagskrá. Boston lagði New Orleans á heimavelli sínum 94-82 og hefur þar með unnið fjórtán leiki í röð. Liðið hefur ekki náð annari eins sigurgöngu síðan árið 1986, en það ár vann liðið meistaratitilinn. Boston er með 22 sigra og 2 töp, en það er besta byrjun liðs í NBA síðan Chicago Bulls byrjaði 23-2 leiktíðina 1995-96. Paul Pierce var stigahæstur hjá Boston með 28 stig og Kevin Garnett var með 19 stig og 10 fráköst. David West skoraði 23 stig og hirti 13 fráköst fyrir New Orleans og Chris Paul skoraði 20 stig og gaf 14 stoðsendingar. James Posey sneri þarna aftur til Boston með nýja liði sínu eftir að hafa orðið meistari með Boston á síðustu leiktíð. Hann fékk afhentan meistarahring sinn í nótt. Ellefu í röð hjá Cleveland Cleveland Cavaliers er á viðlíka siglingu og Boston og í nótt vann liðið 11. sigurinn í röð þegar það skellti Philadelphia á heimavelli 88-72. Þar með jafnaði Cleveland félagsmet yfir flesta sigra í röð, en það hefur fjórum sinnum áður í sögunni unnið ellefu í röð. LeBron James skoraði 28 stig fyrir Cleveland, sem var án Zydrunas Ilgauskas í leiknum. Willie Green skoraði 19 stig fyrir Philadelphia. Þá náði LA Lakers að hefna fyrir tapið óvænta gegn Sacramento á dögunum þegar liðin áttust við á ný í nótt. Lakers vann að þessu sinni 112-103 þar sem Kobe Bryant skoraði 32 stig fyrir Lakers. Úrslitin í nótt: Boston Celtics 94 - New Orleans Hornets 82 Cleveland Cavaliers - 88 Philadelphia 76ers 72 Detroit Pistons 114 - Indiana Pacers 110 Golden State Warriors 108 - Houston Rockets 119 LA Lakers 112 - Sacramento Kings 103 Memphis Grizzlies 103 - Chicago Bulls 96 Miami Heat 73 - Atlanta Hawks 87 Minnesota Timberwolves 86 - San Antonio Spurs 98 New Jersey Nets 79 - Toronto Raptors 101 Phoenix Suns 113 - Orlando Magic 112 Portland Trail Blazers 112 - LA Clippers 120 (tvíframl.)
NBA Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fleiri fréttir Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Sjá meira