Teitur: Menn trúa ekki hvað þeir geta spilað vel Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. apríl 2010 21:29 Teitur átti oft erfitt með sig á hliðarlínunni. Mynd/Valli
Sá mikli keppnismaður, Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum svekktur eftir tapið gegn Njarðvík í kvöld en Teitur er sanngjarn maður og hann viðurkenndi að Njarðvík hefði unnið verðskuldað. „Þetta var algjörlega verðskuldað hjá þeim og ég sagði það við Sigga Ingimundar eftir leikinn. Þeir spiluðu frábærlega í síðari hálfleiknum. Við áttum ekki möguleika. Þegar Friðrik Stefánsson er farinn að setja niður þriggja stiga skot er nú fokið í flest skjól," sagði Teitur og glotti út í annað. „Þeir hittu úr hverju einasta skoti á tímabili og þegar við áttum smá möguleika var brotið á Justin, ekkert dæmt og þeir fara fram og skora þriggja stiga körfu. Við réðum ekki við þá fimm stiga sveiflu. Ég ætla samt ekki að gagnrýna dómgæsluna enda sá dómarinn ekki atvikið nógu vel, hann var blindaður." Stjörnumenn mættu ótrúlega værukærir til síðari hálfleiksins eftir að hafa spilað mjög vel í þeim fyrri. „Mér hefur fundist þetta vera svona hjá okkur í þessari rimmu. Það kemur eitthvað upp eins og menn trúi því ekki hvað þeir geta spilað vel. Ég er ógeðslega fúll en það þýðir ekkert. Við erum nokkurn veginn á pari við það sem við ætluðum okkur í vetur," sagði Teitur sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Stjörnuna. Hann gerir ráð fyrir að vera áfram í Garðabænum. „Við ætlum okkur að gera betur á næsta ári og ég vona að ég verði hér áfram. Mig langar að gera smá breytingar fyrir næsta tímabil og ég tel mig vita hvað okkur vantar. Ég vil helst samt ekki segja það núna. Ég tel mig samt vita hvað okkur vantar til þess að taka næsta skref."
Dominos-deild karla Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Sport Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira