Pabbi Madeleine: Yfirvöld brugðust dóttur minni 28. apríl 2010 08:15 Foreldrar Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal fyrir þremur árum. Pabbi hennar segir að yfirvöld í Bretlandi hafi brugðist Madeleine. Mynd/AFP
Gerry McCann, faðir Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007, segir að bresk yfirvöld hafi brugðist dóttur hans. Í næstu viku verða liðinn þrjú ár frá því að Madeleine McCann var rænt af hótelherbergi foreldra sinna í bænum Praia de Luz í Portúgal nokkrum dögum áður en hún varð fjögurra ára gömul. Hvarf hennar vakti heimsathygli og hennar hefur verið leitað um allan heim án árangurs. Miklar tröllasögur voru á kreiki á meðan að rannsóknin stóð sem hæst og sérstaklega þóttu portúgalskir fjölmiðlar óvægnir í umfjöllun sinni um foreldrana sem um tíma voru taldir bera ábyrgð á hvarfinu. Þá bendir margt til þess að portúgalska lögreglan hafi fengið margvíslegar ábendingar sem ekki var fylgt eftir. Gerry McCann segir í viðtali sem sjónvarpað verður eftir helgi að það sé afar sorglegt að bæði portúgalska og breska lögreglan hafi ekki gert betur þegar málið kom upp. Þá segir hann að bresk yfirvöld hafi gefist upp og taki ekki lengur þátt í leitinni að dóttur hans. Þau hafi því brugðist Madeleine. Brýnt sé að yfirvöld haldi áfram að rannsaka hvarf hennar. Ekki megi gefa upp vonina um að nýjar upplýsingar komi fram sem geti leitt til þess að Madeleine finnist.
Madeleine McCann Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Fleiri fréttir Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Sjá meira