„Of Monsters and Men hefur tekist að safna stórum aðdáendahópi víðs vegar um heiminn án þess að hafa lagt í tónleikaferðir eða unnið með kynningarstofum,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Records Records.
Fyrsta plata Of Monsters and Men kemur út 20. september. Haraldur segir að á annað hundrað platna séu þegar seldar í forsölu á heimasíðu útgáfunnar, allar til útlanda.
Erlendur áhugi sést til að mynda greinilega á myndbandasíðunni YouTube. Þar má finna fjöldan allan af áhugasömum tónlistarmönnum spreyta sig á laginu Little Talks, til dæmis þessa hér.
Hljómsveitin fagnar plötunni með tónleikum í Gamla bíói fimmtudagskvöldið 6. október. Miðasala hefst í dag klukkan 10 hér á miði.is og kostar miðinn 2.000 krónur í forsölu.
Of Monsters and Men hefur slegið í gegn í sumar með lagi sínu Little Talks en það hefur verið eitt vinsælasta lag landsins síðustu vikur og situr í 1. sæti íslenska lagalistans. - afb
Tónlist