
Börn og lestur – mikilvægi foreldra
n börn hafi aðgang að bókum heima, helst bókum sem þeim finnst áhugaverðar
n börn finni að lestur sé mikilvægur
n bækur séu til á heimilinu, að börn sjái foreldra sína lesa
n foreldrar lesi mikið og lesi sér til ánægju
n börn lesi og að foreldrar hlusti af áhuga á þau lesa
n börn og foreldrar ræði saman um það sem börnin lesa
n foreldrar haldi áfram að lesa fyrir börn sín þótt þau geti lesið hjálparlaust.
Læsi er ekki námsgrein heldur grundvallarfærni sem gengur þvert á allar námsgreinar og er undirstaða annars náms og starfa í samfélaginu. Því er mikilvægt að heimili og skólar séu samstiga í því að styrkja læsi barna.
Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Í ár taka Íslendingar þátt í þessum alþjóðlega degi í fjórða skiptið. Í tilefni af Degi læsis eru fjölskyldur hvattar til að skipuleggja 30 mínútna samverustund, þar sem lesið er saman, bækur skoðaðar og rætt um efni bókanna.
Nokkur dæmi um það sem fjölskyldur geta gert:
n Lestur um tiltekið efni. Sammælist um efnið. Finnið misþungt lesefni, þannig að allir hafi lesefni miðað við aldur og leikni. Hafið lestrartíma þar sem allir lesa sitt efni í hljóði. Hver og einn getur síðan sagt frá sínu lesefni. Takið saman í lokin hvers fjölskyldan varð vísari.
nSpilið spil þar sem lesa þarf texta til að geta haldið áfram. Gæti verið heimatilbúið slönguspil.
nRáðið krossgátur saman.
nTeiknið upp kort sem sýnir leiðir að heimilinu, í vinnu, verslun, skóla. Merkið götuheiti og helstu kennileiti.
nSegið barninu frá bókum sem þið hafið lesið og gefið barninu tækifæri til þess sama.
nFarið oft með barnið á bókasafnið til að fá lánaðar bækur.
nHafið gott aðgengi að bókum, tímaritum og hljóðbókum á heimilinu.
nVerið góð fyrirmynd, sérstaklega er feðrum og öðrum karlmönnum í fjölskyldum drengja bent á mikilvægi þess að vera góð fyrirmynd við lestur.
nGerið barnið að þátttakanda í daglegum lestrar- og skriftarathöfnum fjölskyldunnar, t.d. þegar þið lesið blöðin eða skrifið innkaupalista. Fáið barnið til að hjálpa til við að finna vörur í hillum verslana, lesa mataruppskriftir um leið og eldað er, lesa dagskrá sjónvarpsins og textann á skjánum, lesa leiðbeiningar sem til eru á heimilinu, skrifa og lesa á kort og tölvupóst, skoða vefsíður og tölvuforrit. Börn stíga sín fyrstu spor í lestri og læsi með fjölskyldunni. Þau verða fyrir áhrifum frá henni. Viðhorf, áhugi og notkun lesefnis á heimili hefur bein áhrif á lestrar- og skriftargetu barnsins.
Skoðun

Myndir þú ráða fatlað fólk í vinnu?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Hvað ert þú að gera?
Eiður Welding skrifar

Rauðir sokkar á 1. maí
Sveinn Ólafsson skrifar

1. maí er líka fyrir fatlað fólk!
Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar

Verkalýðshreyfingin á næsta leik í Evrópuumræðunni
Dagbjört Hákonardóttir skrifar

Á milli steins og sleggju Heinemann
Ólafur Stephensen skrifar

Heiðrum íslenska hestinn
Berglind Margo Þorvaldsdóttir skrifar

Allir eiga rétt á virku lífi — líka fatlað fólk
Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar

Er kominn tími á Útlendingafrí?
Marion Poilvez skrifar

Janus og jakkalakkarnir
Óskar Guðmundsson skrifar

Jafnréttisbaráttan er brýnni en nokkru sinni fyrr
Kolbrún Halldórsdóttir,Sunna Kristín Símonardóttir skrifar

Hvað ætlar þú að vera þegar þú verður stór?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Samtalið um dauðann veldur okkur óöryggi
Ingrid Kuhlman skrifar

Sköpum störf við hæfi!
Unnur Hrefna Jóhannsóttir skrifar

Immigrant Women: Essential Workers, Rising Voices on Labor Day
Maru Alemán skrifar

Tikkað í skipulagsboxin
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Það sem er ósagt varðandi vinnubrögð hjá Háskólanum á Akureyri
Þóra Sigurðardóttir skrifar

Sjúklingur settur í fangaklefa
Arnar Þór Jónsson skrifar

Opið bréf til fjármálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar
Íris Róbertsdóttir skrifar

Ég kalla hann Isildur; mentorinn minn er gervigreind
Björgmundur Guðmundsson skrifar

Hvað er „furry“ annars?
Jóhanna Jódís Antonsdóttir skrifar

Jafnaðarmennskan og verkalýðsbaráttan
Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar

Hljóð og mynd íslenskra varna
Arnór Sigurjónsson skrifar

Kveðjur úr Grafarvogi til þeirra sem kasta steinum úr glerhúsi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Leiðsöguhundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Fimmtíu ár frá lokum Víetnamstríðsins
Finnur Th. Eiríksson skrifar

Að undirbúa börnin okkar fyrir heim sem er að hverfa
Halldóra Mogensen skrifar

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna
Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Bókin er minn óvinur, en mig langar samt í verknám!
Davíð Bergmann skrifar

Ilmurinn af jarðolíu er svo lokkandi
Sævar Helgi Lárusson skrifar