KR vann ellefu stiga sigur í uppgjörinu í Keflavík í nóvember en bæði lið eru með yfir 90 prósenta sigurhlutfall þegar öll lið deildarinnar eru búin að mætast.
Það hefur aðeins gerst einu sinni áður. KR og Grindavík unnu 21 af 22 leikjum sínum fyrir áramótin 2008-2009 og enduðu síðan á því að spila magnaðan oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn um vorið.
Tvö af þremur liðum sem hafa unnið alla deildarleiki sína fyrir áramót í sögu úrvalsdeildarinnar hafa farið alla leið og unnið Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík náði því tímabilið 2007-08 undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar og KR náði einnig titlinum árið eftir undir stjórn Benedikts Guðmundssonar.
Eina liðið sem hefur klikkað eftir að hafa unnið alla deildarleiki sína fyrir jól var Grindavíkurliðið tímabilið 2003-2004. Grindavík er enn fremur eina liðið af fyrrnefndum þremur sem skipti út bandarískum leikmanni sínum um áramótin.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, lét Dan Trammel þá fara og Kanamál liðsins voru í upp í loft það sem eftir var móts. Grindavík tapaði 4 af 11 deildarleikjum sínum eftir áramót, datt út úr undanúrslitum bikarsins á heimavelli og féll út úr undanúrslitum úrslitakeppninnar eftir tap í oddaleik.
Grindavíkurliðið skar sig einnig úr hvað það varðar að liðið vann fimm af þessum fyrstu ellefu deildarleikjum tímabilsins með fimm stigum eða minna.
KR-liðið í vetur hefur unnið tíu af ellefu leikjum sínum með tíu stigum eða meira. Minnsti sigur liðsins var fjögurra stiga sigur á Stjörnunni í byrjun nóvember. KR var þremur stigum undir fyrir lokaleikhlutann en vann hann 24-17 og þar með leikinn.
KR hefur unnið leikið sína með 21,3 stigi að meðaltali en nær ekki að jafna árangur KR-liðsins frá 2009 sem vann ellefu leiki sína með 27,3 stigum að meðaltali í leik.
KR-ingar hafa reyndar misstigið sig einu sinni á leiktíðinni því þeir duttu út úr bikarnum þegar þeir töpuðu á móti Njarðvík í Ljónagryfjunni í byrjun nóvember.
Hin þrjú liðin voru öll á lífi í bikarkeppninni um áramótin þótt að engu þeirra hafi tekist að vinna bikarinn. KR-liðið frá 2009 var næst því en liðið tapaði á móti Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum.
Hér fyrir neðan má sjá samanburð á þessum fjórum ósigruðu liðum um áramót.
Ósigruðu liðin fyrir jól

Nettósigrar: +81 (7,4 í leik)
Stórir sigrar (+10): 4 af 11
Þjálfari: Friðrik Ingi Rúnarsson
Fyrirliði: Pétur Guðmundsson
Fyrsta tapið: Í 12. leik á móti Njarðvík í janúar 2004
Stigahæstu leikmenn fyrir áramót:
Darrel Lewis 24,3
Páll Axel Vilbergsson 23,2
Daniel Trammel 14,4
Helgi Jónas Guðfinnsson 13,0
Guðmundur Bragason 9,6

Nettósigrar: +157 (15,7 í leik)
Stórir sigrar (+10): 8 af 10
Þjálfari: Sigurður Ingimundarson
Fyrirliði: Magnús Þór Gunnarsson
Fyrsta tapið: Í 11. leik á móti Grindavík í janúar 2008
Stigahæstu leikmenn fyrir áramót:
Bobby Walker 22,0
Tommy Johnson 19,8
Magnús Þór Gunnarsson 11,8
Gunnar Einarsson 10,4
Jón Norðdal Hafsteinsson 8,4

Nettósigrar: +300 (27,3 í leik)
Stórir sigrar (+10): 9 af 11
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Fyrirliði: Fannar Ólafsson
Fyrsta tapið: Í 17. leik á móti Grindavík í febrúar 2009
Stigahæstu leikmenn fyrir áramót:
Jakob Örn Sigurðarson 17,1
Jason Dourisseau 16,5
Jón Arnór Stefánsson 14,9
Helgi Már Magnússon 9,9
Darri Hilmarsson 9,5

Nettósigrar: +234 (21,3 í leik)
Stórir sigrar (+10): 10 af 11
Þjálfari: Finnur Freyr Stefánsson
Fyrirliði: Brynjar Þór Björnsson
Fyrsta tapið: ??? (Næsti leikur á móti Grindavík)
Stigahæstu leikmenn fyrir áramót:
Martin Hermannsson 18,5
Helgi Már Magnússon 14,5
Darri Hilmarsson 13,9
Brynjar Þór Björnsson 12,6
Pavel Ermolinskij 10,4

