Fótbolti

Arnór lék í tapi Helsingborgar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skagamaðurinn Arnór Smárason lék rúmar 70 mínútur fyrir Helsingborg í dag.
Skagamaðurinn Arnór Smárason lék rúmar 70 mínútur fyrir Helsingborg í dag. Heimasíða Helsingborg
Arnór Smárason lék í 71 mínútu þegar lið hans, Helsingborg, beið lægri hlut fyrir Kalmar, 2-0, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

David Elm og Måns Söderqkvist skoruðu mörk Kalmar í sitthvorum hálfleiknum.

Arnór hefur leikið tíu leiki fyrir Helsingborg í deildinni og skorað tvö mörk, en liðið tapaði bikarúrslitaleik gegn  Elfsborg um síðustu helgi.

Seinna í dag mætast svo IFK Gautaborg og IFK Nörrkoping.


Tengdar fréttir

Elfsborg bikarmeistari | Arnór lék allan leikinn

Elfsborg varð í dag sænskur bikarmeistari eftir 1-0 sigur á Helsingborgs á Friends Arena í Stokkhólmi. Þetta var þriðji bikarmeistaratitillinn sem Elfsborg vinnur í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×