Curry í aðalhlutverki þegar Golden State tók forystuna gegn Houston | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. maí 2015 07:14 Curry, verðmætasti leikmaður tímabilsins, skoraði 34 stig í nótt. vísir/getty
Stephen Curry skoraði 34 stig þegar Golden State Warriors tók forystuna í einvíginu gegn Houston Rockets með fjögurra stiga sigri, 110-106, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í nótt. Golden State, sem var með bestan árangur allra liða í deildinni í vetur, var í vandræðum framan af leik og um miðjan 2. leikhluta var staðan 33-49, Houston í vil. En Golden State átti frábæran endasprett í fyrri hálfleik og lauk honum með 21-4 kafla. Shaun Livingston var sérlega mikilvægur á þessum kafla en hann skoraði 14 af 18 stigum sínum í 2. leikhluta. Golden State var þremur stigum yfir í hálfleik, 58-55, og hélt forystunni í þeim seinni þrátt fyrir gott áhlaup Houston í 4. leikhluta. Leiknum lyktaði loks með fjögurra stiga sigri Golden State, 110-106. Curry og Livingston voru stigahæstir í liði Golden State og þá átti Draymond Green einnig flottan leik með 13 stig, 12 fráköst og átta stoðsendingar. James Harden fór fyrir liði Houston með 28 stig, 11 fráköst og níu stoðsendingar. Dwight Howard skilaði sjö stigum og 13 fráköstum fyrir Eldflaugarnar en miðherjinn þurfti að fara af velli í seinni hálfleik vegna meiðsla í hné.
NBA Mest lesið Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Handbolti „Ég á erfitt með að trúa þessu upp á hreinræktaðan Árbæing“ Íslenski boltinn Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Körfubolti Sjáðu Gylfa leggja upp sigurmarkið fyrir Gunnar og öll hin í sigri Víkinga á KR Íslenski boltinn Vellirnir hálftómir á HM félagsliða Sport Leikmenn sænska kvennalandsliðsins slógust á æfingu Fótbolti Giftu sig í miðju hlaupi Sport Þjálfari Evrópumeistaranna ber að ofan og berfættur á æfingu liðsins Fótbolti Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Körfubolti Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Körfubolti Fleiri fréttir ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Sigtryggur Arnar framlengdi við Tindastól Óvænt stjarna með súperinnkomu af bekknum þegar Pacers komst í 2-1 Þegar neyðin er mest er Caruso næst Kraftaverkamaðurinn Gunnar Már sem þjálfarinn kallar Jesús Júlíus Orri semur við Tindastól Drungilas næstu þrjú árin hjá Tindastóli Íslandsmeistarasystkinin með bikara sem hafa litið betur út Knicks horfir til Dallas í leit að næsta þjálfara Shai setti stigamet þegar OKC jafnaði úrslitaeinvígið Birna snýr aftur og er ein af fjórum sem framlengir Taiwo Badmus staðfestur hjá Stólunum: „Ég er kominn heim“ Snýr aftur til Íslands betri en nokkru sinni áður Má ekki koma inn í íþróttahús í tíu mánuði „Þakklátur fyrir að konan sé tilbúin að leyfa mér að upplifa þetta“ Arnar Guðjónsson tekur við Stólunum Dabbi kóngur framlengir og Þór sækir tvo frá Selfossi „Minn draumur er að fá að spila í úrslitakeppninni“ Endurkomukóngarnir tryggðu sigur á lokasekúndunni Sjúkraþjálfarinn fær stöðuhækkun hjá Þórsliðinu Besti ungi leikmaðurinn í Bónus deildinni semur við Álftanes Nýliðar KR semja við landsliðskonu sem er dóttir fyrrum fyrirliða karlaliðsins Sjá meira