Sumarið er komið og loksins virðast Steinrósirnar ætla að springa út. Nú er liðinn mánuður síðan breska hljómsveitin The Stone Roses rauf tuttugu ára útgáfuþögn með laginu All for One. Það lag hefur hlotið sæmilegustu viðtökur á meðal aðdáenda sem bíða spenntir eftir þriðju plötu sveitarinnar.
Í dag sleppti sveitin svo öðru lagi af plötunni og aðdáendur virðast vera að missa sig. Lagið heitir Beautiful Thing og ber yfir sér sama fersklega og fegurð og öll bestu verk þeirra til þessa.
Nokkur leynd hefur verið yfir nýju breiðskífunni en talið er að hún komi út í sumar þar sem sveitin hefur bókað sig á nokkrar af stærri tónleikahátíðum ársins. Sveitin hefur ekki gefið neinn fyrirvara áður en nýju lögunum tveimur hafa birst á YouTube. Það má því vel vera að platan komi út án tilkynningar.
Aðdáendur óttast margir að samstarfið renni í sandinn því í fjölda mörg ár töluðu liðsmenn ekki saman. Svo fór allt í bál og brand aftur eftir að sveitin kom saman fyrir nokkra tónleika árið 2011.
En miðað við þetta nýjasta lag þá er greinilega kominn tími til þess að rífa fram Stussy hettupeysuna og pokabuxurnar. Það má heyra hér að ofan.
Steinrósirnar ná blóma
Tengdar fréttir

Þriðja plata Stone Roses væntanleg
Hljómsveitin leggur nú lokahönd á þriðju breiðskífu sína, þá fyrstu í rúm 20 ár.

Fyrsta lag The Stone Roses í 20 ár komið út
Breska rokksveitin rauf óvænt langa útgáfuþögn í dag með laginu All for One.