Könnun MMR: Píratar og Sjálfstæðisflokkur á pari Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. september 2016 16:01
Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokka samkvæmt nýrri könnun MMR. Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar njóta mest fylgis sem áður og mælist fylgi beggja flokka 22,7 prósent. Fylgi Sjálfstæðisflokksins lækkar um tæp tvö prósent á milli kannana en fylgi Pírata er því sem næst óbreytt. Athygli vekur að Björt framtíð bætir ekki við sig fylgi en því höfðu margir spáð eftir að flokkurinn var sá eini sem tók afstöðu gegn Búvörusamningunum í atkvæðagreiðslu þann 13. september síðastliðinn. Þá var framkvæmd könnunarinnar reyndar nýhafin en hún stóð yfir frá 12. til 19. september. Eins og sjá má á grafinu hér að neðan hafa litlar breytingar orðið frá síðustu könnun MMR. Niðurstöður hennar voru birtar 29. ágúst. Fylgi Vinstri-grænna mældist 13,2% og hefur verið svotil stöðugt síðan í seinnihluta júlí þegar fylgi flokksins mældist 12,9%. Viðreisn mældist með 11,5% fylgi, sem er 2,7 prósentustigum meira en í síðustu könnun sem lauk 29. ágúst. Framsókn mældist með 11,0% fylgi og mældist 10,6% í síðustu könnun. Samfylkingin mældist með 8,1% fylgi, borið saman við 9,1% í síðustu könnun. Björt framtíð mældist með 4,1% fylgi, borið saman við 4,5% í síðustu könnun.Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.Nánar á vef MMR.
Kosningar 2016 Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent Reyndi að fá bóluefni gegn Covid úr umferð á versta tíma Erlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fleiri fréttir Um 170 íbúar komnir með húsaskjól og rýmingarsvæðum fjölgað Rýmingar á Austfjörðum, vopnahlé og dýramessa „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Sjá meira