
Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi – fólk, laxar og sameiginleg framtíð
Eldislax er verðmætur fiskur og skilar meiri verðmætum á hvert kíló en bolfiskur. Þannig mun 30.000 tonna fiskeldi á laxi skila meiri verðmætum en allur bolfiskafli sem kemur á land í Bolungarvík, Ísafirði og Súðavík.
Samkvæmt tölum um fjölda starfa í norsku fiskeldi, má gera ráð fyrir að 30.000 tonna fiskeldi í Ísafjarðardjúpi skapi á bilinu 400 til 600 störf. Þá eru ótalin afleiddu störfin, störfin sem skapast í samfélaginu vegna aukningar á opinberri þjónustu og annarri almennri þjónustu. Áhrifin af þessum nýjum störfum myndu leiða til þess að fjölgun íbúa væri ekki talin í hundruðum, heldur þúsundum íbúa í sveitarfélögum við Djúp.
Utan þessa hefur starfsemi fiskeldisfyrirtækja jákvæð áhrif á rekstur sveitarfélaga, en fiskeldisfyrirtæki eru t.d. mikilvægir viðskiptavinir hafnarsjóða sveitarfélaganna. Þessi 30.000 tonn af eldislaxi gætu skilað 300 til 400 milljónum í tekjur til hafnarsjóða þessara sveitarfélaga sem eru svipaðar tekjur og af 200-300 skemmtiferðaskipum.
Það þarf því ekki að efast um að fyrirhugað fiskeldi í Ísafjarðardjúpi mun skipta sköpum fyrir samfélögin við Djúp. Þúsundir nýrra starfa og fjölgun íbúa munu auka getu sveitarfélaganna til að byggja upp betra samfélag. Betra samfélag sem ekki verður lengur í stöðugri varnarbaráttu með tilheyrandi fækkun íbúa þar sem sífellt erfiðara verður að halda uppi þeirri þjónustu sem íbúar eiga skilið. Betra samfélag er sjálfbært samfélag , sem viðheldur sér og vex í sátt við menn, líf, umhverfi og framtíð.
Þessi mikilvæga uppbygging má ekki ganga á náttúruna með óafturkræfum hætti og nauðsynlegt að finna jafnvægi milli nýtingar og verndunar. Í nýlegri skýrslu Hafrannsóknastofnunar er komist að þeirri niðurstöðu að of mikil áhætta er á að þrjár laxveiðiár í Ísafjarðardjúpi verði fyrir skaða vegna erfðablöndunar við strokufiska úr fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. Ýmsir hafa gagnrýnt skýrsluna og forsendur hennar og viljað hunsa niðurstöður hennar. Aðrir hafa jafnvel ýjað að því að fórna mætti laxastofninum í þessum fallegu laxveiðiám. Þess þarf ekki og að sjálfsögðu á náttúran að njóta vafans, eins og hún hefur fengið að gera í gegnum allt leyfisferli fiskeldis í Ísafjarðardjúpi.
Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar er hins vegar einnig fjallað um mótvægisaðgerðir sem fiskeldisfyrirtæki geta gripið til til að minnka áhættuna á erfðablöndun. Fiskeldisfyrirtækin hafa sjálf talað fyrir mótvægisaðgerðum og hafa þau fjallað um þær í sínum umsóknum um fiskeldi í Ísafjarðardjúpi.
Það er krafa okkar að samfélagið við djúp fái líka að njóta vafans og það verði reynt á umræddar mótvægisaðgerðir. Áhættumatið verði endurmetið á forsendum mótvægisaðgerða og ný sviðsmynd verði gerð á forsendum þess. Umræddar laxveiðiár verði jafnframt vaktaðar sérstaklega og fylgst með hvernig villti stofninn bregst við fiskeldi. Ef vel tekst til með fiskeldið og sannanlega verði sýnt fram á að mótvægisaðgerðir virki, þá er ekkert því til fyrirstöðu að hefja fiskeldi í Ísafjarðardjúpi strax á næsta ári. Á sama tíma fær náttúran áfram að njóta vafans.
Það er ófrávíkjanleg krafa að hagsmunir samfélagsins við Djúp séu jafnframt hafðir til hliðsjónar í þeirri stóru ákvörðun um hvort leyfa eigi fiskeldi í Ísafjarðardjúpi sem nú er fram undan.
Það eru allar forsendur fyrir hendi, lýðfræðilegar, líffræðilegar, vistvænar og hagrænar að menn og laxar, hvort sem þeir lifa villt eða í eldi, eigi sér öfluga sameiginlega framtíð við Ísafjarðardjúp.
Það er kjarni málsins.
Höfundur er bæjarstjóri í Bolungarvík.
Skoðun

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar