Erlent

Oprah Winfrey kallar áhrifakonur á sinn fund

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Oprah Winfrey stýrði á dögunum pallborðsumræðum um kvennabyltingu í Hollywood.
Oprah Winfrey stýrði á dögunum pallborðsumræðum um kvennabyltingu í Hollywood. Vísir/EPA

Oprah Winfrey kallaði á sinn fund áhrifakonur í skemmtana-og kvikmyndageiranum til að ræða um áhrif „Time's up-átaksins“ svokallaða sem hefur vakið talsverða athygli. Átakinu er ætlað að leiðrétta valdaójafnvægið sem hefur ríkt bæði í skemmtana- og kvikmyndaðinaðinum og á almennum og opinberum vinnumarkaði í Bandaríkjunum.



America Ferrera, Natalie Portman, Tracee Ellis-Ross, Reese Witherspoon, Shonda Rhimes, Kathleen Kennedy og Nina Shaw sátu fyrir svörum og voru mættar til þess að ræða opinskátt um átakið og markmið þess. Pallborðsumræðunum, sem Oprah Winfrey stýrir, verður sjónvarpað í þættinum „Sunday Morning“ þann fjórtánda janúar á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS.



Þrátt fyrir að þátturinn verði sýndur á morgun gaf sjónvarpsstöðin áhorfendum sýnishorn af honum. Í sýnishorninu spyr Oprah Winfrey leikkonuna Reese Witherspoon út í kynferðislega árás sem hún varð fyrir af hendi leikstjóra þegar hún var sextán ára gömul.

Reese Witherspoon er lítur framtíðina björtum augum og vonar að konur haldi áfram að vera hugrakkar að segja frá.

Reese vitnaði í Elie Wiesel til að leggja áherslu á mál sitt: „Við verðum að taka afstöðu. Hlutleysi hjálpar kúgaranum en aldrei þolandanum. Þögn hvetur kvalara en aldrei þá sem kveljast.“Reese sagði að á stundum þyrftu þolendur að vega og meta hvort þögnin sé þeirra val og að einu sinni hafi það verið raunveruleikinn. „Sá tími er liðinn,“ sagði Reese staðföst. 


Tengdar fréttir

„Tíminn er útrunninn“

Hundruð kvenna skrifuðu undir opið bréf sem birtist í dag í bandaríska dagblaðinu New York Times.

Hátíðahöld, glys og glamúr í skugga kynferðisofbeldis

Golden Globe-verðlaunahátíðin verður haldin í kvöld en um er að ræða fyrstu stóru verðlaunahátíðina sem haldin er síðan kynferðisleg áreitni valdamanna í Hollywood var dregin fram í dagsljósið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×