Seinni platan er ávöxtur samstarfs West og Kid Cudi og hefur fengið nafnið Kids See Ghosts.
me and Cudi album June 8th
— KANYE WEST (@kanyewest) April 19, 2018
it's called Kids See Ghost. That's the name of our group
— KANYE WEST (@kanyewest) April 19, 2018
Síðasta plata West, The Life of Pablo, kom út árið 2016 og er þetta því í fyrsta skiptið í um það bil tvö ár sem tónlistarmaðurinn gefur út nýtt efni.
Kappinn sneri aftur á Twitter í vikunni eftir ellefu mánaða hlé frá samfélagsmiðlinum.
West tilkynnti einnig nýlega að hann hygðist gefa út heimspekirit, sem mun heita Break The Simulation eða Rof í eftirlíkingunni. Bókin mun fjalla um vangaveltur West um ljósmyndir sem menningarlegt fyrirbæri.
Rapparinn hefur birt línur úr bókinni á twitter reikning sinn og segir að enginn útgefandi bendi honum á hvar hann eigi að setja efnið eða hversu margar blaðsíður bókin eigi að vera.
oh by the way this is my book that I'm writing in real time. No publisher or publicist will tell me what to put where or how many pages to write. This is not a financial opportunity this is an innate need to be expressive.
— KANYE WEST (@kanyewest) April 18, 2018