Illdeilur Ísraels og Írans harðna Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. maí 2018 06:00 Skilaboðin voru skýr á blaðamannafundi Netanjahús, sem fór fram á ensku. vÍSIR/AFP
Illdeilur Ísraela og Írana harðna dag frá degi og eru kjarnorkumál síðarnefnda ríkisins nú í sviðsljósinu. Leiðtogar ríkjanna tveggja kalla hvor annan lygara og málflutningur Ísraela þykir auka líkurnar á að Bandaríkjamenn rifti kjarnorkusamkomulagi sem Bandaríkin, Bretar, Rússar, Frakkar, Kínverjar, Þjóðverjar og ESB gerðu við Íran árið 2015. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, vakti athygli á blaðamannafundi sínum á mánudag þar sem hann sýndi tugi mappa og á annað hundrað geisladiska sem áttu að innihalda skjöl Íransstjórnar um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. Sagði Netanjahú að leyniþjónusta Ísraela hafi unnið þrekvirki og fundið skjölin í læstum skápum í húsi sem leit út fyrir að vera niðurnídd vöruskemma. Skjölin eiga, samkvæmt Netanjahú, að sýna fram á að Íranar hafi logið að alþjóðasamfélaginu í aðdraganda kjarnorkusamkomulagsins Sagði hann Írana hafa unnið að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum í leyni eftir að tilkynnt var um að áætlunin hefði verið lögð niður árið 2003. Netanjahú sýndi ekki fram á með afgerandi hætti að Íranar hefðu brotið samkomulagið með því að halda áfram vinnu við að koma sér upp kjarnorkuvopnum eftir að það var innleitt árið 2016. Sagði hann þó að unnið hefði verið áfram að verkefninu í leyni. Það rímar illa við fyrri skýrslur Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar sem hefur sagt Írana vera að fylgja samkomulaginu.Treysta á greind alþjóðasamfélagsins Íranar voru ósáttir við staðhæfingar Netanjahús. Bahram Qasemi utanríkisráðherra sagði að ásakanir um lygar Íransstjórnar væru þreyttar, gagnslausar og skammarlegar. „Þessar ásakanir koma frá gjaldþrota, alræmdum lygara sem hefur ekkert upp á að bjóða annað en svik og pretti. Þetta er fáránlegur áróður,“ sagði harðorður Qasemi og bætti við: „Netanjahú og hin barnamyrðandi ógnarstjórn síonista hljóta að vera meðvituð um að heimsbyggðin er nógu klár til að gleypa ekki við þessu.“ Netanjahú svaraði svo fyrir sig. Sagði Írana einfaldlega ekki vilja að heimsbyggðin fengi að vita það sem Ísraelar væru að greina frá.Javad Zarif, utanríkisráðherra Ísraels.Vísir/AFpJavad Zarif, utanríkisráðherra Írans, sagði svo sjálfur að með ummælum sínum væri Netanjahú að reyna að þvinga Trump til þess að rifta kjarnorkusamkomulaginu. Trump hefur áður sagst ætla að rifta samkomulaginu. Gerði hann það til dæmis ítrekað í kosningabaráttunni. Frestur hans til að ákveða sig rennur út þann 12. maí næstkomandi. Trump-liðar tóku ummælum Netanjahús vel. Sagði talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna í gær að upplýsingarnar sem Netanjahú birti gæfu nýja innsýn í írönsk kjarnorkumál. Forsetaembættið sagði ásakanir Netanjahús samræmast upplýsingum Bandaríkjanna um að Íranar hafi unnið að gerð kjarnorkuvopna. Mike Pompeo utanríkisráðherra sagði í gær skjöl Netanjahús sýna fram á með óyggjandi hætti að Íransstjórn hafi logið. Ekki voru þó allir á Vesturlöndum á sama máli. Rob Malley, úr samninganefnd Bandaríkjanna sem skipað var í í forsetatíð Baracks Obama, sagði Netanjahú ekki hafa birt neinar nýjar upplýsingar. Utanríkisráðuneyti Frakklands sagði svo að ísraelska leyniþjónustan hafi með þessu sýnt enn betur fram á mikilvægi kjarnorkusamkomulagsins. Ísraelar hafa sjálfir sett sig mjög svo upp á móti gerð samkomulagsins, telja það styrkja stöðu Írana. Þjarmaði að Netanjahú Chris Cuomo, blaðamaður CNN, þjarmaði að Netanjahú í viðtali sem hann tók í gær. Sagði hann mikilvægt að ríki greindu frá því hvort þau ættu, eða ynnu að gerð kjarnorkuvopna og spurði Netanjahú hvort Ísraelar ættu kjarnorkuvopn. „Við höfum alltaf sagt að við yrðum ekki fyrsta ríkið til að greina frá slíku svo við höfum ekki gert það,“ sagði Netanjahú. Cuomo endurtók spurninguna og fékk svarið: „Þú færð ekki betra svar en þetta. En ég skal segja þér það að Íran hefur skrifað undir alls konar yfirlýsingar og samkomulög um kjarnorkuvopn. Íran kallar daglega eftir því að Ísrael verði lagt í rúst.“ Cuomo sagðist hafa skilning á málflutningi Netanjahús. Íranar væru þekktir fyrir að ljúga en það skipti máli að leyna ekki kjarnorkuvopnum. „Hvaða skilaboð sendir það þegar þið svarið sjálf ekki spurningu sem meirihluti alþjóðasamfélagsins telur sig vita svarið við? Hvernig samræmist það því að vinna eftir gegnsæissjónarmiðum?“ Netanjahú sagði þetta ekki snúast um sjónarmið. Íranar hafi skrifað undir samkomulag sem skyldi þá til að greina frá málum sínum. Þegar Cuomo spurði í síðasta sinn af hverju Ísraelar vildu ekki staðfesta að þeir ættu kjarnorkuvopn svaraði Netanjahú: „Þú mátt draga þær ályktanir sem þú vilt. Eitt er ljóst, við lofum aldrei gereyðingu annarra ríkja.“
Birtist í Fréttablaðinu Mið-Austurlönd Tengdar fréttir Íranar horfa ásökunaraugum á Ísraela Eldflaugum skotið á bækistöðvar íranskra hermanna í norðurhluta Sýrlands. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Íranar telja Ísraela hins vegar líklegasta. Írönsk yfirvöld hafna því að íranskir hermenn hafi fallið í árásunum. 1. maí 2018 06:00 Forsætisráðherra Ísraels þarf nú aðeins eitt atkvæði til að lýsa yfir stríði Ísraelska þingið hefur samþykkt ný lög sem gera forsætisráðherra landsins kleift að lýsa yfir stríði svo lengi sem hann fær samþykki varnarmálaráðherra síns. Um er að ræða breytingu á fyrri lögum sem gerðu þá kröfu að stríðsyfirlýsingar væru lagðar fyrir alla ríkisstjórnina. 1. maí 2018 10:20 Segir Írani hafa logið um kjarnorkuvopnaáætlun sína Benjamin netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, segir yfirvöld Íran hafa unnið að þróun kjarnorkuvopna í laumi og í langan tíma. 30. apríl 2018 18:09 Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Byrjað að smella af með stærstu myndavél í heimi Meira örplast í flöskum úr gleri en plasti Hífðu lystisnekkjuna sem sökk upp úr sjónum við Sikiley Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Sjá meira
Íranar horfa ásökunaraugum á Ísraela Eldflaugum skotið á bækistöðvar íranskra hermanna í norðurhluta Sýrlands. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Íranar telja Ísraela hins vegar líklegasta. Írönsk yfirvöld hafna því að íranskir hermenn hafi fallið í árásunum. 1. maí 2018 06:00
Forsætisráðherra Ísraels þarf nú aðeins eitt atkvæði til að lýsa yfir stríði Ísraelska þingið hefur samþykkt ný lög sem gera forsætisráðherra landsins kleift að lýsa yfir stríði svo lengi sem hann fær samþykki varnarmálaráðherra síns. Um er að ræða breytingu á fyrri lögum sem gerðu þá kröfu að stríðsyfirlýsingar væru lagðar fyrir alla ríkisstjórnina. 1. maí 2018 10:20
Segir Írani hafa logið um kjarnorkuvopnaáætlun sína Benjamin netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, segir yfirvöld Íran hafa unnið að þróun kjarnorkuvopna í laumi og í langan tíma. 30. apríl 2018 18:09