Golden State sópaði Cleveland og vann þriðja titilinn á fjórum árum Einar Sigurvinsson skrifar 9. júní 2018 09:00 Kevin Durant var valinn mikilvægasti leikmaður lokaúrslitanna. getty
Golden State Warriors eru NBA-meistarar annað árið í röð eftir fjórða sigur liðsins á Cleveland Cavaliers í jafn mörgum leikjum í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta. Leikurinn í nótt fór fram í Cleveland og lauk með öruggum 23 stiga sigri Golden State, 108-85. Warriors byrjuðu leikinn betur og voru níu sigum yfir í hálfleik. Þeir héldu síðan uppteknum hætti og að lokum þriðja leikhluta var forskot Golden State komið í 21 stig. Von Cleveland um að verða fyrsta liðið í sögu NBA-deildarinnar til að koma til baka eftir að lenda 3-0 undir í lokaúrslitunum var því aldrei mikil. Stephen Curry var frábær fyrir lið Golden State og skoraði 37 stig. Kevin Durant var með þrefalda tvennu. Hann skoraði 20 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Í leikslok var Durant verðlaunaður sem mikilvægasti leikmaður lokaúrslistinna, en hann fer þar með í hóp 11 leikmanna sem hafa unnið verðlaunin tvisvar á ferlinum. LeBron James var atkvæðamestur í liði Cleveland með 23 stig, átta stoðsendingar og sjö fráköst. Eftir leikinn sagði LeBron að hann hafi spilað síðustu þrjá leiki lokaúrslitanna handarbrotinn.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Íslenski boltinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Enski boltinn Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Fleiri fréttir Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Sjá meira