James Harden fór á kostum í liði Rockets eins og hann hefur gert síðustu leiki. Hann náði sér í sína aðra þreföldu tvennu í vikunni og fimmta leikinn í röð skoraði hann yfir 40 stig.
Leikurinn endaði með eins stigs sigri gestanna frá Houston eftir að langur flautuþristur Kevin Durant hitti ekki körfuna.
Harden skoraði sigurkörfu leiksins og lauk leik með 44 stigum, 15 stoðsendingum og 10 fráköstum. Clint Capela bætti 29 stigum og 21 frákasti við fyrir Houston.
Stephen Curry skoraði 35 stig fyrir Golden State og Durant var með 26.
JAMES HARDEN WINS IT FOR THE @HOUSTONROCKETS FROM DOWNTOWN!
Final in Oakland:#Rockets 135#DubNation 134 pic.twitter.com/SOJ374U8P0
— NBA (@NBA) January 4, 2019
WHAT. A. PERFORMANCE.
@JHarden13 (44 PTS, 10 3PM, 15 AST, 10 REB) records his 3rd 40+point triple-double of the season and hits the game-winning triple for the @HoustonRockets in Oakland! #Rocketspic.twitter.com/7fz1zU6YkR
— NBA (@NBA) January 4, 2019
DeMar DeRozan fékk í kvöld sína fyrstu þreföldu tvennu á ferlinum og það sem meira er þá gerði hann það í fyrsta leik gegn sínum gömlu félögum.
DeRozan var níu ár í Toronto en var skipt yfir til San Antonio Spurs í sumar. Kawhi Leonard fór í hina áttina í skiptunum, frá Spurs til Raptors. Leikur liðanna í nótt var einnig fyrsta endurkoma Leonard til San Antonio.
DeRozan skoraði 24 stig, tók 14 fráköst og gaf 11 stoðsendingar í 125-107 sigri heimaliðsins.
„Það var mjög gaman að fara út á gólfið og grínast í gömlu liðsfélögunum. En það voru engar tilfinningar, þetta var ekki tilfinningaríkur leikur fyrir mig,“ sagði DeRozan í leikslok.
Leonard skoraði 21 stig í endurkomunni en stuðningsmenn Spurs gáfu honum ekki hlýlegar móttökur. Þeir kölluðu hann meðal annars svikara og lætin í áhorfendunum virtust hafa áhrif á hann.
@DeMar_DeRozan notches his 1st career triple-double with 21 PTS, 14 REB, 11 AST in the @spurs home victory! #GoSpursGopic.twitter.com/BcNEX0Abqn
— NBA (@NBA) January 4, 2019
Denver Nuggets vann sinn fjórða sigur í röð þegar liðið sótti Sacramento Kings heim og heldur sér á toppi vesturdeildarinnar.
Jamal Murray skoraði 36 stig fyrir Nuggets, og þar af 17 í lokafjórðungnum, í áttunda sigri Nuggets í 10 leikjum. Nikola Jokic bætti við 26 stigum fyrir Denver.
Sacramento var með 13 stiga forystu í hálfleik og stækkuðu forskotið upp í 70-55 snemma í þriðja leikhluta en þá fór Murray í gang og skoraði átta stig í röð í 13-0 áhlaupi Denver. Það var allt jafnt fyrir síðasta fjórðunginn sem gestirnir unnu.
Úrslit næturinnar:
San Antonio Spurs - Toronto Raptors 125-107
Sacramento Kings - Denver Nuggets 113-117
Golden State Warriors - Houston Rockets 134-135