Fallist var á endurupptöku málsins í árið 2015 en tekist var á um frávísunarkröfu málsins í Hæstarétti í morgun. Sigurður sagðist svartsýnn á að málið fengi efnislega meðferð vegna þess að frávísunarkrafan var tekin fyrir ein og sér í morgun og það sé merki um að fallist verði á hana.
Sigurður ræddi við fréttastofu eftir að hafa verið í Hæstarétti í morgun en hann sagðist ekki sætta sig við þá niðurstöðu að hafa verið fundinn sekur í málinu. Málið hafi reynst honum afar erfitt.
Ítarlegt viðtal við Sigurð og sambýliskonu hans, Sigrúnu Jónu Sigmarsdóttur, má horfa á í heild sinni hér fyrir neðan.
Börnin lögð í einelti
„Þetta er búið að leggja líf mitt á hvolf. Hjónabandið leystist upp, við misstum allt sem við áttum. Allt í einu komin í leiguhúsnæði, vorum ekki með vinnuna, ég fór og keypti mér leigubíl, fór að reyna að byggja upp Nu Skin-viðskipti. Þegar dómur féll í héraði þá mátti ég ekki keyra leigubílinn og var kominn á atvinnuleysisbætur. Þannig að þetta hefur verið mjög erfitt og ég missti allt saman,“ segir Sigurður.Hann segir málið hafa reynt á fjölskylduna og börnin.
„Sum hafa verið lögð í einelti en það hafa allir í minni fjölskyldu vitað að þetta er ekki rétt, þetta er eitthvað sem ég geri ekki. Ég hef alltaf haft stuðning allra í fjölskyldunni með mér og minna vina.“
Hann segir sama kvíða og stress hafa gripið um sig þegar málið hlaut vilyrði frá endurupptökunefnd árið 2015 og þegar það var í ferli árið 2002 og 2003.

Vill að þetta verði lagað
„Þetta reynir á en þetta er ekki af ástæðulausu sem ég er að gera þetta. Mín réttlætiskennd er það sterk að ég vil að þetta verði lagað, þetta er rangt. Það sem gerist er að þegar þetta er samþykkt fer ríkissaksóknari í það að reyna fá endurupptökunefnd til að hætta við endurupptöku. Og gerði það nokkrum sinnum. Svo var skipt um nefnd í fyrra og þá byrjaði hún aftur þannig að nýja nefndin þurfti að fara aftur í gegnum málið og þeirra niðurstaða var sú sama, að þetta yrði endurupptekið. Svo byrjar hún (ríkissaksóknari) aftur á því í dag að koma með frávísunarkröfu og var þá eingöngu fjallað um hana.“Hann segir það skrýtið að sínu mati að það sé hægt að vísa endurupptöku málsins frá án þess að hún sé tekin til efnislegrar meðferðar.

Ekkert í líkingu við það sem foreldrar barnsins hafa upplifað
Sigurður segir að þótt málið hafi reynst sér erfitt sé það ekkert í líkingu við það sem foreldrar barnsins hafa þurft að ganga í gegnum.„Þetta er hræðilega erfitt fyrir þau og ábyggilega erfiðara en fyrir mig. Þau hljóta að vilja fá að vita hvað gerðist, þetta er ekki það sem gerðist og það þarf að finna niðurstöðu í það af hverju barnið deyr. Það gæti orðið erfitt því þetta er það gamalt mál en þau hljóta að vilja að fá að vita hvað er satt og rétt í þessu máli eins og ég. “
Spurður út í samfélagsálitið segir hann þá sem þekkja sig vita að þetta sé ekki satt og rétt.
„Og þegar ég hef útskýrt málið fyrir fólki, þú hristir ekki barn án þess að það séu ummerki utan á barninu, marblettir, rifbeinsbrot jafnvel handleggsbrot og fótbrot, engir svoleiðis áverkar á barninu, þá skilur fólk að þetta gerist ekki svona. Það er í rauninni búið að dæma mig fyrir að skjóta persónu en það er ekkert far eftir byssukúlu á viðkomandi. Þetta lítur þannig út fyrir mér. Ég hef verið kallaður barnamorðingi af þeim sem ekki þekkja en ég hef alltaf haft stuðning frá mínu fólki og mínum vinum og þeim sem ég hef fengið að útskýra málið fyrir.“

Sagði henni strax frá eftir að hafa kynnst á Einkamál
Sambýliskona Sigurðar heitir Sigrún Jóna Sigmarsdóttir en þau kynntust á öðrum degi jóla árið 2002 á vefnum Einkamál.is.Hún segir Sigurð hafa sagt sér frá þessu máli strax. „Og það kom bara löng þögn í símann hjá mér og ég stamaði fyrstu setninguna og hugsaði hvað er ég að koma mér út í. Ég bað hann um að gefa mér smá pláss til að hugsa þetta hvort ég vildi vera í sambandi við hann og ég gaf mér tíma og samþykkti að vera í sambandi við hann og hér erum við enn.“
Áfall að skutla honum í fangelsi
Hún segist hafa staðið eins og stórklettur við hlið hans en henni fannst erfiðast þegar hann þurfti að afplána fangelsisdóm vegna málsins.„Ég skutlaði honum niður á Skólavörðustíg í Hegningarhúsið og mátti koma inn og kveðja hann en síðan var mér bara hent út og enginn tók á móti mér. Ég var í þvílíku taugaveiklunarsjokki að ég var hágrátandi og vissi ekkert hvert ég var að fara. Þetta var svolítið áfall fyrir mig að hafa engan til að taka á móti mér þegar ég labbaði út úr fangelsinu. Svo vissi ég ekki neitt meir fyrr en þremur vikum síðar þegar hann var fluttur á Kvíabryggju.“
Henni þykir verst hvað þetta hefur komið niður á börnum þeirra. Hún átti fjögur börn fyrir og hann sex börn og það tók á að sameina fjölskyldurnar. Þau voru ekki alltaf sammála um hvernig það ætti að vera en verst þótti henni að sjá börnin verða fyrir einelti vegna málsins.
Segir Eyjamenn hafa smjattað á málinu
Þau fluttust til Vestmannaeyja en Sigrún segir Eyjamenn hafa „smjattað“ um málið.„Fólk var svolítinn tíma að átta sig á að hann var að flytja í bæinn. Hann var kallaður barnamorðingi og fólk var tvístíga en sumt fólk kom til okkar og bankaði upp og sagði; velkomin á eyjuna! Og trúði ekki að hann hefði gert þetta en aðrir gerðu það.“

„Hann er sá eini sem veit hvað kom ekki fyrir og hefur lagt mjög mikla rannsóknarvinnu í þetta „shaken baby syndrome-mál“ og þetta stenst ekki og hann hefur sagt þetta við fólk sem hefur verið að koma með ályktun að hann hafi gert þetta.“
Hún segir þetta auðvitað ótrúlega erfitt fyrir foreldra barnsins. „Og miklu erfiðara fyrir þau heldur en okkur sem hjón. Ég get ekki ímyndað mér hvernig er að missa barn og þetta hlýtur að taka vel á þau. En ef ég væri þau myndi ég vilja fá að vita hvað kom fyrir.“
Ef endurupptökunni verður vísað frá býst hún við að þau flytji úr landi. „Það er ekki hægt að búa á landi þar sem réttarfarskerfið er ónýtt.“