Ófarir Real halda áfram sem töpuðu fyrir botnliðinu Anton Ingi Leifsson skrifar 28. apríl 2019 21:00 Svekktir leikmenn Real í kvöld. vísir/getty Það gengur ekki né rekur hjá Real Madrid þetta tímabilið en í kvöld töpuðu þeir fyrir botnliðinu Rayo Vallecano, 1-0, á útivelli. Fyrsta mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 23. mínútu. Dæmd var vítaspyrna eftir að dómarinn kíkti á VARsjána og Adrián Embarba skoraði.- Real Madrid have now lost 16 matches in all competitions this season, the most in a single campaign since 2008/09 (16). #RMLiga#RayoRealMadrid — Gracenote Live (@GracenoteLive) April 28, 2019 Það reyndist eina mark leiksins og þrátt fyrir að hafa verið örlítið meira með boltann var ekki mikil ógn af þreföldu Evrópumeisturunum sem þurftu að sætta sig við 1-0 tap. Eftir tapið er Rayo Vallecano komið af botninum og á enn von á að halda sæti sínu. Þeir eru sex stigum frá öruggu sæti er níu stig eru í pottinum. Real er hins vegar í þriðja sætinu, níu stigum á eftir Atletico Madrid. Það þarf margt og mikið að gerast svo Real komist upp fyrir granna sína í síðustu þremur umferðunum. Spænski boltinn