
Hákarl heiftarlega limlestur, en hvalir eru líka sprengdir, tættir og kæfðir; með leyfi stjórnvalda!
Skv. reglugerð, sem sjávarútvegsráðherra gaf út 19. febrúar sl., má veiða 209 langreyðar – næst stærsta spendýr veraldar – og 217 hrefnur á þessu sumri. Samtals 426 dýr. Þetta vafasama dráp má svo – að vilja ráðherra og þar með auðvitað forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar – halda áfram næstu fjögur árin með sama hætti. Í lokin skulu allt að 2.130 dýr liggja í „valnum“.
Eru þau dýr, sem sleppa særð og limlest, til þess eins að deyja drottni sínum í kvalræði, eins og nú aumingjans hákarlinn, ótalin. Skv. skýrslum vísindamanna, sleppa a.m.k. 5% dýranna, sem skotin eru við Ísland, særð og lemstruð (Framvinduskýrsla Íslands til Alþjóðahvalveiðiráðsins 2006-2011), en af veiðifjölda þessa sumars gætu það orðið yfir 20 dýr.
Einhvern veginn virðist það fara fram hjá almenningi eða þá að menn leiða það hjá sér, af gömlum vana – að dráp á verulegum hluta hvala fer fram með kvalafullum drápsaðferðum og langvarandi pyntingum, og eru aðfarir og dýraníð hvalveiðimanna sízt skárra, en hræðileg meðferð nefndra sjómanna á hákarlinum.
Í raun sannast það hér, að það er ekki nóg að horfa, menn verða að vilja sjá það, sem við blasir, til að nema það, skilja og bregðast við því með náttúrulegum hætti.
Á sama tíma og yfirgnæfandi meirihluti manna virðist fordæma heiftarlegt dýraníð á varnarlausum hákarli, og það fullkomlega með réttu, styður verulegur hluti landsmanna – að nokkru leyti – jafn heiftarleg dýraníð á varnarlausum, háþróuðum hvölum og fullgengnum kálfum þeirra, en sumir þeirra standa uppi munaðarlausir og bjargarlausir eftir dráp móður.
Hygg ég, að allt það hjartagóða fólk, sem harmar nú misþyrmingar og níð á blessuðum hákarlinum, myndi finna til með hvölunum, með sama hætti, ef það setti sig inn í, hvernig hvalveiðar fara fram. Kynni stuðningur við hvalveiðar þá að hrapa.
Skutulbyssurnar, sem langreyðar eru drepnar með, eru yfir hálfrar aldar gamlar, og hefur framleiðandi þeirri, Kongsberg Vaapenfabrikk, staðfest, að bæði framleiðslu byssanna og viðhaldi þeirra hafi verið hætt fyrir meira en 50 árum.
Þetta eru því forngripir, ónákvæm og ófullkominn drápstæki, og sýna skýrslur vísindamanna, að lífið er bókstaflega murkað úr margri langreyðinni og margri hrefnunni, með svipuðum hætti, jafnvel kannske verri, en nú varð raun á með hákarlinn á Snæfellsnessmiðum.
Í skýrslu Vassili Papastavrou sjávarlíffræðings um hrefnuveiðar, „Dýravelferðarsjónarhornið á hvalveiðum við Ísland“ frá 2013, kemur fram, að: „Færri en einn af hverjum fimm hvölum drepst samstundis í veiðum Japana og gögn sýna, að eitt dýrið átti í dauðastríði lengur en 35 mínútur?…“ Svona gögn um hrefnuveiðar eru ekki fyrirliggjandi hér, en engin ástæða er til að ætla, að hrefnudráp gangi betur hér.
Í skýrslu Dr. Egil Ole Öen, „Killing efficiency in the Icelandic fin whale hunt 2014“, sem afhent var sjávarútvegsráðherra í febrúar 2015, kemur fram, að af 50 langreyðum, sem veiddar voru, þurfti að murka líftóruna úr átta dýrum á löngum tíma. Mörg þeirra þurfti að skjóta tvisvar. Fyrsti sprengiskutullinn springur þá í dýrinu, stálkló skutuls opnast og rífur innyfli, líffæri og hold, án þess að drepa strax. Þarf þá að skjóta aftur, en um átta mínútur tekur að hlaða byssu, og á meðan gengur hvalurinn í gegnum heiftarlegt kvalræði. Stundum dugar 2. skot heldur ekki til að drepa, og kafna þá hvalir oft, þar sem þeir ná ekki lengur höfðinu upp úr sjónum.
Þeir sem harma nú níð hákarlsins myndu fyllast sama hryllingi á hvalveiðum, ef þeir sæu slíkt myndskeið, en þess er vandlega gætt, að slíkar myndir raunveruleikans í hvalveiðum komist ekki í umferð.
Það, sem gerir hvaladrápið og hvalaníðið enn sorglegra er, að með því er enginn efnahagslegur tilgangur, en hvalveiðifyrirtækin öll hafa verið rekin með halla fjölmörg undangengin ár, skv. opinberum gögnum.
Fullyrðingar um sjálfbærni við hvalveiðar standast heldur ekki, því að bæði efnahagslegur tilgangur og skjót og sársaukalaus aflífun eru skilyrði fyrir „sjálfbærni“ skv. nútíma skilgreiningu þess orðs. Er hvorugt til staðar.
Skoðun

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar