Listamaðurinn Ólafur Elíasson hefur verið fenginn til þess að útbúa listaverk sem lýsir upp Sigurbogann í höfuðborg Frakklands, París. Stefnt er að því að verkið verði sett upp árið 2020. RÚV greindi fyrst frá.
Fjallað er um málið á vef The Art Newspaper en þar segir að kostnaður við verkið sé áætlaður þrjár milljónir evra, rúmlega 400 milljónir króna. Verkið verður fjármagnað með aðkomu Fonds pour Paris, stofnunar sem Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, kom á fót til að styðja við nútímalist í höfuðborginni.
Verkið er enn á hugmyndastigi og segir Anne-Céline Delvert, aðstoðarframkvæmdastjóri Fonds pour Paris, nánari upplýsingar verði gerðar aðgengilegar síðar í sumar eða snemma hausts. Raunar segir hún að ekki sé vitað hvort að hægt verði að setja upp listaverkið þar sem það muni líklega verða tæknilega flókið.
Listaverk Ólafs mun vera hluti af fegrunarátaki borgaryfirvalda fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í borginni árið 2024. Er listaverkinu ætlað að auðga Sigurbogann sem varð fyrir skemmdarverkum í mótmælum Gulvestunga í lok síðasta árs.
Sigurboginn er eitt helsta kennileiti Parísar. Stendur hann í miðju Charles de Gaulle-torgs við vestari enda Champs-Élysées. Smíði við bogann hófst árið 1806 og var hann formlega vígður 30 árum síðar. Sigurboginn er minnisvarði um þá sem börðust fyrir Frakkland og létu í frönsku byltingunni sem og í stríðum Napóleons.
