Fjórir af þeim bílum sem enduðu í sex efstu sætunum byrjuðu í einhverju af neðstu sex sætunum en kappaksturinn í dag var algjörlega mögnuð skemmtun.
Það gekk mikið á í kappakstrinum í dag en mikil rigning hefur verið í Þýskalandi sem gerði ökuþórum erfitt fyrir. Til að mynda byrjaði Sebastian Vettel sem 20. en endaði í öðru sætinu, slík var dramatíkin.
Formula One - Sebastian Vettel is the first driver to finish as high as 2nd after starting in 20th position or worse, since Montoya, also at Hockenheim, in 2005. #F1#GPGermany
— Gracenote Live (@GracenoteLive) July 28, 2019
Eins og áður segir voru Verstappen og Vettel í fyrstu tveimur sætunum en í þriðja sætinu kom Daniil Kvyat í mark frá Toro Rosso. Hann hefur ekki komist á verðlaunapall í síðustu ellefu keppnum.
Heimsmeistarinn Lewis Hamilton og samherji hans hjá Mercedes, Valtteri Bottas, lentu í vandræðum í keppninni í dag. Hamilton endaði ellefti og Bottas náði ekki að klára en einungis þrettán ökuþórar kláruðu keppnina í dag.
LAP 57/64: SAFETY CAR
The race goes from bad to worse for Mercedes
Valtteri Bottas' race is over as pushes beyond the limit in the race for the final podium place
Lewis Hamilton is down in P14#F1#GermanGP pic.twitter.com/NYu9T6MNrA
— Formula 1 (@F1) July 28, 2019