Olíuverð hefur tekið stökk í kjölfar árásarinnar. Sádar hafa þó staðhæft að birgðir þeirra muni halda sölugetu þeirra uppi á meðan viðgerðir fara fram. Sérfræðingar segja þó að viðgerðir gætu tekið marga mánuði.
Sjá einnig: Olíuverð snarhækkaði í Asíu
Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en embættismenn í Bandaríkjunum, sem rætt hafa við fjölmiðla ytra segja umfang árásarinnar gefa til kynna að Hútar hafi ekki getað gert hana. Þá segja þeir árásina hafa komið úr norðri eða norðvestri en Jemen, þar sem Hútar eiga í átökum við fylkingar studdar af Sádi-Arabíu er suður af konungsríkinu.
Stefnan gefur í skyn að árásin hafi komið frá Íran eða Írak, þar sem Íranar eru umsvifamiklir og hefur Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, rætt við Adil Abdul-Mahdi, forsætisráðherra Írak, í kjölfar árásarinnar. Samkvæmt AP fréttaveitunni neitar hann því að árásin hafi verið framkvæmd frá Írak.

Yfirvöld Íran þvertaka þó fyrir að hafa komið að árásinni.
Bandaríkin birtu í gær gervihnattarmyndir sem sýna umfang árásanna og að minnst sautján skotmörg hafi orðið fyrir skemmdum.
Talið er að fjöldi dróna hafi verið notaður til árásarinnar og mögulega einhverjar eldflaugar líka.
Sérfræðingar sem blaðamenn AP ræddu við segja gervihnattarmyndir sýna að miklar skemmdir hafi verið unnar á mikilvægum búnaði í vinnslustöðinni og svo virðist sem hún hafi verið skipulögð til að valda sem mestum skaða.
Endurbyggja þurfi hluta stöðvarinnar og viðmælandi AP sagði að sá tími sem viðgerðir stæðu yfir yrði mældur í mánuðum.
Mikil spenna hefur ríkt á milli Íran og Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu á undanförnum mánuðum eftir að Trump sleit kjarnorkusamkomulaginu svokallaða við Íran og beitti aftur viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum gegn ríkinu. Íranar hafa í kjölfarið verið sakaðir um dularfullar árásir á olíuflutningaskip og að hamla ferðir slíkra skipa um Persaflóa.
Þá skutu Íranar niður bandarískan dróna í sumar. Í kjölfar þess skipulögðu yfirvöld Bandaríkjanna árásir á Íran og lýsti Trump því yfir að hann hefði hætt við þær tíu mínútum áður en af þeim átti að verða.