Mögnuð endurkoma Tottenham Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. nóvember 2019 21:45 Jose Mourinho náði í sigur í fyrsta heimaleiknum með Tottenham vísir/getty Tottenham vann sigur í fyrsta heimaleik Jose Mourinho eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn Olympiacos á heimavelli. Olympiacos var fyrir leikinn án sigurs í B-riðli Meistaradeildar Evrópu og því kom það nokkuð á óvart þegar gestirnir frá Grikklandi komust yfir. Youseff El Arabi skoraði á sjöttu mínútu þegar boltinn féll fyrir hann við vítateigshornið. Olympiacos komst svo tveimur mörkum yfir þegar Ruben Semedo skoraði á 19. mínútu. Martraðarbyrjun fyrir nýju lærisveina Jose Mourinho. Undir lok fyrri hálfleiks náði Tottenham að laga stöðuna aðeins, Dele Alli skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiksins. Harry Kane jafnaði metin eftir sendingu frá Lucas í upphafi seinni hálfleiks og Tottenham komst svo yfir með marki Serge Aurier á 73. mínútu. Kane gulltryggði svo sigur Tottenham með skallamarki eftir aukaspyrnu Christian Eriksen á 77. mínútu. Leiknum lauk með 4-2 sigri Tottenham sem tryggði þar með farseðil sinn áfram í útsláttarkeppnina, Tottenham er nú með 10 stig, sjö stigum meira en Rauða stjarnan í þriðja sætinu þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti