Everton unnið báða leikina síðan Ancelotti tók við Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. desember 2019 16:45 Calvert-Lewin skoraði bæði mörk Everton gegn Newcastle. vísir/getty Everton lagði Newcastle United að velli, 1-2, á St James' Park í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton sem hefur unnið báða leikina undir stjórn Carlos Ancelotti og náð í ellefu stig af 15 mögulegum síðan Marco Silva var rekinn. Dominic Calvert-Lewin skoraði bæði mörk Everton en hann hefur verið heitur upp á síðkastið. Hann kom gestunum yfir á 14. mínútu. Gylfi átti þá aukaspyrnu sem fór í varnarvegginn. Hann fékk boltann aftur og átti skot sem fór af varnarmanni og til Calvert-Lewins sem skoraði. Fabian Schär jafnaði fyrir Newcastle á 56. mínútu en átta mínútum síðar skoraði Calvert-Lewin annað mark sitt sem reyndist sigurmarkið. Með sigrinum jafnaði Everton Newcastle að stigum. Liðin eru í 10.-11. sæti deildarinnar. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti