Madrídingar komnir á toppinn eftir sigur á Sociedad Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. júní 2020 21:58 Á toppnum. vísir/Getty Real Madrid trónir nú á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-2 sigur á Real Sociedad í síðasta leik helgarinnar í spænsku úrvalsdeildinni. Fyrri hálfleikur var markalaus en Sergio Ramos kom gestunum yfir með marki úr vítaspyrnu á 50.mínútu. Adnan Januzaj hefði getað jafnað metin en vítaspyrna hans geigaði á 67.mínútu. Karim Benzema tvöfaldaði forystuna á 71.mínútu en Mikel Merino klóraði í bakkann fyrir gestina skömmu síðar. Lokatölur 1-2 fyrir Real Madrid sem jöfnuðu þar með Barcelona að stigum á toppnum en Madridingar hafa innbyrðis viðureignir á Börsunga og sitja því á toppnum. Fótbolti Spænski boltinn