Innlent

Axli þegar í stað á­byrgð á brotum gegn er­lendu starfs­fólki

Atli Ísleifsson skrifar
ASÍ kallar eftir því að loforð Lífskjarasamninganna um lagalegar heimildir til refsinga vegna brota á kjarasamningum verði uppfyllt. Ólíðandi sé að slík brot, sem séu hreinn og klár þjófnaður, viðgangist refsilaust.
ASÍ kallar eftir því að loforð Lífskjarasamninganna um lagalegar heimildir til refsinga vegna brota á kjarasamningum verði uppfyllt. Ólíðandi sé að slík brot, sem séu hreinn og klár þjófnaður, viðgangist refsilaust. Getty

ASÍ hefur skorað á ferðaþjónustufyrirtæki og samtök atvinnurekenda að axla þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki og fyrirbyggja slík brot til framtíðar, þar á meðal með því að tryggja fræðslu til rekstraraðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ þar sem brugðist er við skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem kynnt var á föstudaginn og tekur á aðstoðum erlends starfsfólks í ferðaþjónustu. Þar segir að algengustu brot sem erlent starfsfólk í ferðaþjónustu verði fyrir séu vegna vangreiddra launa og brota á reglum um hvíldartíma og frídaga.

ASÍ segir að niðurstöður skýrslunnar séu í fullu samræmi við fyrri skýrslur um sama efni og við reynslu stéttarfélaga og Vinnustaðaeftirlits ASÍ.

„Eins og fram kemur í skýrslunni fjölgaði erlendu starfsfólki í ferðaþjónustu mikið í tengslum við hraðan vöxt ferðaþjónustunnar. Dæmi eru um að fólk vinni full störf og jafnvel meira fyrir lítil eða engin laun og að sjálfboðaliðastörf séu notuð sem yfirvarp. Nokkuð algengt er að atvinnurekendur útvegi starfsfólki húsnæði. Leiguupphæð er gjarnan yfir markaðsverði á viðkomandi svæði en hvorki stéttarfélög né aðrir eftirlitsaðilar hafa heimildir til að fylgja því eftir að húsnæði sé viðunandi. Ráðningarsambandið er oft ótryggt og mikill misbrestur á gerð ráðningarsamninga og útgáfu launaseðla. Þá eru fjölmörg dæmi um að fólk þori ekki að hafa samband við stéttarfélög af ótta við brottrekstur eða vegna slæmrar reynslu af stéttarfélögum í heimalandi.

ASÍ skorar á ferðaþjónustufyrirtæki og samtök atvinnurekenda að axla þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki og fyrirbyggja slík brot til framtíðar, þar á meðal með því að tryggja fræðslu til rekstraraðila,“ segir í tilkynningunni.

María Lóa Friðjónsdóttir.ASÍ

Loforð Lífskjarasamninganna

ASÍ kallar eftir því að loforð Lífskjarasamninganna um lagalegar heimildir til refsinga vegna brota á kjarasamningum verði uppfyllt. Ólíðandi sé að slík brot, sem séu hreinn og klár þjófnaður, viðgangist refsilaust.

„Þá þarf að tryggja heimildir Vinnustaðaeftirlits stéttarfélaganna og opinberra eftirlitsaðila, þ. á m. slökkviliðs og heilbrigðiseftirlits, til að hafa eftirlit með húsnæði sem atvinnurekendur útvega starfsfólki,“ segir í tilkynningunni.

Þá er haft eftir Maríu Lóu Friðjónsdóttur, verkefnastjóra Vinnustaðaeftirlits ASÍ, að verkalýðshreyfingin hafi ítrekað verið sökuð um að ljúga og fara offari þegar greint sé frá aðbúnaði og kjörum erlends starfsfólks. „Skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála er mikilvægt innlegg því hún sýnir svart á hvítu það sem fyrri úttektir og reynsla stéttarfélaganna hafa bent til, það er að réttur erlends launafólks í ferðaþjónustu er víða fyrir borð borinn. Þetta er fullkomlega í samræmi við þann veruleika sem við í Vinnustaðaeftirliti ASÍ höfum orðið vitni að og kallað eftir aðgerðum gegn,“ segir María Lóa.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×