Lögreglubíll í forgangsakstri lenti í árekstri á rauðu ljósi Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. febrúar 2020 10:12 Frá vettvangi árekstursins í Kópavogi í morgun. SFM
Árekstur lögreglubíls í forgangsakstri og fólksbíls varð við Engihjalla í Kópavogi um áttaleytið í morgun. Engin slys urðu á fólki en nokkrar umferðartafir urðu þó vegna óhappsins. Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi segir í samtali við Vísi að þrír lögreglumenn hafi verið í bílnum sem kallaður var út vegna tilkynningar um meðvitundarlausan mann. Um var að ræða F2-útkall og lögreglubíllinn þannig á næstmesta forgangi. Þegar bílnum var ekið yfir gatnamót við Engihjalla á rauðu ljósi lenti hann á fólksbíl. Ökumaðurinn var einn í bílnum. Gunnar segir að lögreglubílnum hafi ekki verið ekið mjög hratt og enginn hafi slasast við áreksturinn. Þá hafi tjón á bílunum virst minniháttar. Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti var áreksturinn nokkuð harður og töluverður hvellur heyrðist þegar bílarnir skullu saman. Töluverðar umferðartafir urðu vegna árekstursins, sem varð enda á háannatíma í morgun. Þá var annar lögreglubíll sendur í upphaflega útkallið.
Kópavogur Lögreglumál Samgönguslys Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira