Þorgeir ráðinn framkvæmdastjóri brunavarnasviðs HMS Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2020 10:57 Frá árinu 2017 hefur Þorgeir Óskar Margeirsson starfað sem verkefnastjóri framkvæmda hjá byggingarfélaginu Eykt Aðsend/Getty
Þorgeir Óskar Margeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri brunarvarnasviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem mun taka til starfa á Sauðárkróki 1. október næstkomandi. Tilkynnt var um flutning starfseminnar til Sauðárkróks fyrr í sumar og vakti sú tilhögun mikla athygli þar sem sex menn sviðsins neituðu að flytja norður með stofnuninni. Var flutningurinn sagður liður í áformum ríkisstjórnar að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni. Hlutverk hins nýstofnaða brunavarnasviðs á að vera að stýra og stóraefla brunavarnir á vegum ríkisvaldsins. Í tilkynningunni segir að Þorgeir Óskar hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri og þegar hafið störf. „Þorgeir er með B.Sc. gráðu í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og framhaldsnám (Dipl. Ing.) í byggingarverkfræði frá Universität Karlsruhe í Þýskalandi. Þorgeir er jafnframt menntaður húsasmíðameistari. Hann starfaði með slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli á árunum 1999-2001. Þar fékk hann mikinn áhuga á öllu sem snýr að öryggismálum, eldvörnum og slökkvistarfi og hefur frá þeim tíma lagt sérstaka áherslu á þá þætti í námi sínu og störfum. Í framhaldsnáminu sínu í verkfræði lagði Þorgeir sérstaka áherslu á burðarþol, steypu og verkefnastjórnun og fjallaði lokaverkefni hans um áhrif elds á steinsteypu í jarðgöngum. Þorgeir hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar og byggingaframkvæmda og hefur starfað sem stjórnandi, verkefnastjóri, hönnunarstjóri og burðarþolshönnuður í umfangsmiklum byggingaframkvæmdum bæði á Íslandi, í Noregi, á Grænlandi, og í Malí og Angóla í Afríku í rúm 20 ár. Hann hefur rekið eigin verkfræðistofu og verið meðeigandi í verktaka- og verkfræðifyrirtækjum á Íslandi og í Noregi, s.s. J. Tufteland AS, Husanes AS, Multi og Togson. Auk þess hefur hann starfað fyrir Lahmeyer, Almennu verfræðistofuna og fleiri. Frá árinu 2017 hefur Þorgeir starfað sem verkefnastjóri framkvæmda hjá byggingarfélaginu Eykt,“ segir í tilkynningunni. Aðsend Fimm ráðnir til viðbótar Ennfremur segir frá ráðningu fjögurra sérfræðinga hjá sviðinu og eins forvarnafulltrúa. „Ásgrímur Eiríksson hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings í brunavörnum. Ásgrímur starfar hjá The Danish Institute of Fire and Security Technology í Danmörku og er að ljúka meistaraprófi í verkfræði frá DTU. Hann er menntaður pípulagningamaður og slökkviliðs- og sjúkraflutningsmaður og er með B.Sc. í vélaverkfræði. Grétar Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings í brunavörnum. Hann er umhverfis- og orkutæknifræðingur og vélvirkjameistari. Hann hefur hlotið löggildingu sem hönnuður lagna, loftræstikerfa og burðarvirkja. Síðustu ár hefur Grétar starfað sem verkefnastjóri, við almenna lagnahönnun, hönnun sprinklerkerfa, ráðgjöf, eftirfylgni verkefna, uppsetningu og framkvæmd viðhaldsáætlana fyrir Isavia, OMR verkfræðistofu o.fl. Stefán Árnason hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings í slökkvistarfi. Hann er menntaður slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og B.Sc. gráðu í líffræði. Stefán hefur undanfarin ár starfað hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en hefur einnig starfað sem gæðastjóri hjá Stolt Seafarm Iceland við innleiðingu gæðastjórnunarkerfis, gæðaeftirlit og viðhald gæðakerfis, fræðslu og þjálfun starfsfólks o.fl. Þorlákur Snær Helgason hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðings í slökkvistarfi. Hann er menntaður slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur starfað sem aðstoðarslökkvistjóri hjá Brunavörnum Skagafjarðar frá 2018. Áður starfaði Þorlákur sem þjónustustjóri hjá Isavia á Akureyrarflugvelli og rekstrarstjóri hjá Öryggismiðstöð Norðurlands. Þorlákur hefur einnig starfað sem leiðbeinandi í sjúkraflutningaskólanum og situr í rannsóknarnefnd samgönguslysa. Eyrún Viktorsdóttir hefur verið ráðin í stöðu forvarnafulltrúa brunavarnasviðsins. Hún er lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur að auki lagt stund á nám í líffræði. Eyrún starfaði áður sem lögfræðingur og verkefnastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish og lögfræðingur hjá Dattaca Labs sem sérfræðingur í persónuvernd. Í störfum sínum hefur Eyrún komið að almannatengslum, kynningar- og fræðslumálum og greinaskrifum,“ segir í tilkynningunni.
Skagafjörður Vistaskipti Stjórnsýsla Tengdar fréttir Undirbýr frekari flutninga opinberra stofnana út á land Félags- og barnamálaráðherra hyggst flytja fleiri opinberar stofnanir út á land á næstunni. 26. júlí 2020 13:51 Landsbyggðafólk sótillt út í RÚV og Sigríði Dögg Sigurður Ingi skorar á RÚV að birta frétt um störf sem hafa verið flutt frá landsbyggð og til Reykjavíkur. 13. júlí 2020 16:22 Mest lesið Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Banna dróna yfir Danmörku Erlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Innlent Fleiri fréttir Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Sjá meira
Undirbýr frekari flutninga opinberra stofnana út á land Félags- og barnamálaráðherra hyggst flytja fleiri opinberar stofnanir út á land á næstunni. 26. júlí 2020 13:51
Landsbyggðafólk sótillt út í RÚV og Sigríði Dögg Sigurður Ingi skorar á RÚV að birta frétt um störf sem hafa verið flutt frá landsbyggð og til Reykjavíkur. 13. júlí 2020 16:22