Handtekinn ölvaður í röngu húsi og átti að vera í sóttkví Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. september 2020 22:18 Frá Selfossi. Vísir/vilhelm
Lögregla á Suðurlandi handtók á þriðjudagskvöld karlmann sem farið hafði í óleyfi inn á heimili á Selfossi. Maðurinn reyndist erlendur verkamaður, nýkominn til landsins og átti að vera í sóttkví þegar hann var handtekinn á heimilinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Suðurlandi var maðurinn drukkinn og hafði villst á húsum. Hann var handtekinn inni á heimilinu skömmu fyrir miðnætti á þriðjudag en var óviðræðuhæfur sökum ölvunar og færður í fangageymslu á Selfossi. Þegar í ljós kom að maðurinn átti að vera í sóttkví voru lögreglumennirnir sem voru í samskiptum við hann sjálfir sendir í úrvinnslusóttkví. Maðurinn, sem verið hafði á landinu í um þrjá daga þegar hann var handtekinn, var þá sendur í sýnatöku en reyndist neikvæður fyrir kórónuveirunni. Gert er ráð fyrir að manninum verði gert að greiða sekt fyrir brot á sóttvarnarlögum. Slík sekt getur numið tugum þúsunda króna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom málið mjög illa við húsráðendur, sem voru heima þegar maðurinn fór inn á heimilið.
Árborg Lögreglumál Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira