Erlent

Boðar lok sótt­varna­að­gerða á land­vísu í byrjun desember

Kjartan Kjartansson skrifar
Starfsmaður í skimunarmiðstöð tekur sýni úr sjálfum sér fyrir opnun. í Wales í gær.
Starfsmaður í skimunarmiðstöð tekur sýni úr sjálfum sér fyrir opnun. í Wales í gær. AP/Ben Birchall

Sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins þar sem fólk hefur verið hvatt til halda sig heima á öllu Englandi verður aflétt samkvæmt áætlun 2. desember. Í stað þeirra verður gripið til svæðisbundinna aðgerða. Þá stendur til að hefja bólusetningar þegar í næsta mánuði fáist til þess tilskilin leyfi.

Boris Johnson, forsætisráðherra, staðfesti í gær að aftur yrði notast við svæðisbundnar sóttvarnaaðgerðir í þremur stigum í Englandi eftir að aðgerðunum á landsvísu verður aflétt í næstu viku. Þannig verði hægt að herða eða slaka á aðgerðum á einstökum svæðum eftir því hvernig faraldurinn þróast þar. AP-fréttastofan segir að búist sé við því að flest landsvæði falli í tvö efstu stig sóttvarnaaðgerða.

Landsaðgerðirnar tóku gildi 5. nóvember eftir að smituðum hafði farið ört fjölgandi eins og víðar í Evrópu. Verslunum, líkamsræktarstöðvum, börum og veitingastöðum var lokað þó að þeir síðastnefndu mættu enn selja viðskiptavinum mat til neyslu utan þeirra. Flestar samkomur voru einnig bannaðar en skólastarf hélt áfram.

Nú er þeim byrjað að fækka sem greinast smitaðir í Bretland en fjöldinn er þó enn talinn mikill, á þriðja hundrað manns á dag. Hvergi hafa fleiri látist í Evrópu en á Bretlandi, fleiri en 54.700 manns frá upphafi faraldursins.

Ríkisstjórn Johnson ætlar sér að kynna áform um umfangsmeiri skimanir til þess að bæla faraldurinn niður á meðan bóluefnis er beðið. Bólusetningar gætu hafist strax í desember staðfesti lyfjayfirvöld að þau séu örugg og virk.

Þá er talið að stigbundna sóttvarnakerfið verði tekið til endurskoðunar. Vísindaráðgjafar ríkisstjórnarinnar hafa varað við að aðgerðirnar sem það leggur á séu ekki nógu öflugar og munu þeir leggja fram skýrslu þess efnis á morgun.

Vægasta stigið í því kerfi gerir ráð fyrir því að veitingastöðum og krám sé lokað klukkan tíu á kvöldin og að íbúar megi ekki safnast saman í stærri en sex manna hópum. Á miðstigi aðgerðanna má fólk ekki hitta aðra sem búa ekki á sama heimili eða eru hluti af fámennu „stuðningsneti“ innandyra. Á efsta stigi mega veitingastaðir og barir aðeins selja áfengi ef þeir bjóða upp á „saðsama máltíð“ með því og fólki er ráðlegt að ferðast hvorki til né frá þeirra svæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×