Í tilkynningu sem Kristján sendi fyrr í kvöld segir að staðan verði tekin að nýju í fyrramálið og þá verði ljóst hvort íbúum sé óhætt að fara í hús sem hafa verið rýmd og huga að eigum sínum.
Enn spáir áframhaldandi rigningu.
Íbúar á Seyðisfirði segja samheldni mikla en rætt var við nokkra í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Berglind Sveinsdóttir, formaður Múlasýsludeildar Rauða krossins, segir fólk standa sig mjög vel við erfiðar aðstæður. Guðjón Sigurðsson, stjórnarmaður sömu deildar, segir um 50 til 60 manns hafa leitað í Fjöldahjálparstöðina.
Einnig var rætt við Jón Ólafsson sem sagði frá því að ein aurskriða hefði komið niður hjá húsi hans og fyllt lækinn þar við hliðina.
„Lóðin full af drullu og ég má ekki fara heim. Það er beygur í mörgum. Annars eru menn bara rólegir og reyna að hjálpa hvorum öðrum,“ sagði Jón.
Aðspurður hvort það væri beygur í honum sagði hann svo ekki vera. „Ekkert voðalega.“
Arnar Vilhjálmsson sem vann á gröfu á Seyðisfirði í dag sagði hreinsunarvinnuna ganga hægt og þá vegna þess hve mikið efni bærist úr hlíðinni.

Davíð Kristinsson, varaformaður björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði, er einn þeirra sem hefur þurft að yfirgefa heimili sitt. Hann segist jafnvel gera ráð fyrir því að þurfa að rífa aðra hæð hússins vegna skriðanna.
„Það er voða þægilegt að hafa eitthvað að gera,“ segir hann. Þetta væri bara verkefni sem þyrfti að vinna. Hann sagði góðan hug í bæjarbúum og samheldni meðal þeirra.
Guðrún Ásta Tryggvadóttir, kennari, hefur lengi haft áhyggjur af mögulegum skriðuföllum og kallað eftir upplýsingum um mögulega verkferla. Hún segir að þau svör sem hún hafi fengið hafi verið á þá leið að mjög lítil hætta væri á skriðum. Það þyrfti hamfararigningar til og þær kæmu kannski á hundrað ára fresti.
„Það er greinilega þetta hundraðasta ár núna,“ segir Guðrún.
Sveitarstjóri Múlaþings segist sammála því að skoða þurfi verkferla í tengslum við skriðuföll.