Hann frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Heim en lagið vann hann með Helga Sæmundi Guðmundssyni, oftast kenndur við rapptvíeykið Úlfur Úlfur.
Þeir hafa margoft unnið saman að allskonar verkefnum. Gauti segir að tónlistin sé svolítið ólík því sem þeir hafa látið frá sér hingað til en tilgangur þess að fara í bústað í Fljótunum til að vinna var akkúrat sá að mögulega næðu þeir að draga hvorn annan frá því sem þeir eru vanir og skapa eitthvað nýtt.
„Viku fyrir fyrsta stóra skjálftan tókum við upp tónlistarmyndband á svæðinu sem er nú líklegt að fyllast af hrauni á næstu dögum. Kenningar mínar og Helga eru að þetta lag sé það mikið fire að þegar við spiluðum þetta úr hátölurum í Krýsuvík hafi jörðin byrjað að dansa með.“
Tónlistarmyndbandi við lagið er leikstýrt af Ninna Pálmadóttir en hér að neðan má sjá myndbandið í heild sinni.