Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með ákveðinni vestlægri átt á landinu með rigningu eða slyddu öðru hvoru, en smá snjókomu NA-lands. Hlýnandi veður í bili.
„Norðlægari eftir hádegi með éljum á Norður- og Austurlandi, en léttir annars til og kólnar. Lítilsháttar lægð norður af landinu, hreyfist til suðausturs og dýpkar ört síðar í dag, en það veldur því vaxandi norðanátt á austurhelmingnum nær stormstyrk eða roki á Suðausturlandi undir miðnætti.

Vakin er athygli á gulum veðurviðvörunum á suðaustanverðu landinu, sem taka gildi í kvöld, en þar sem hvessir áfram í nótt gætu viðvaranirnar því orðið appelsínugular.
Dregur talsvert úr vindi eftir hádegi á morgun, en þá falla jafnfram viðvarnir úr gildi. Hiti fer einnig ört lækkandi og má reikna með talsverðu frosti seinni partinn.“
Gulu viðvaranir taka gildi fyrir Suðausturland klukkan 20 í kvöld og gilda til klukkan 13 á morgun, en fyrir Austfirði tekur viðvörunin gildi klukkan 21 og gildir til klukkan níu í fyrramálið.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðvestan 13-20 m/s austantil fram eftir degi, auk þess él á Norðausturlandi, en annars norðlæg eða breytileg átt, 3-10 og bjart með köflum. Frost yfirleitt 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað með köflum, en vestan 5-10 og slydda eða snjókoma SV-til. Frost 1 til 9 stig, en hlánar við S- og V-ströndina og rigning þar undir kvöld.
Á sunnudag:
Suðaustan og austanáttir með rigningu eða slyddu og hita kringum frostmark, en snjókomu og vægu frosti á Norðaustur- og Austurlandi.
Á mánudag:
Norðlæg átt með éljum á N- og A-lands, en annars bjart og kólnandi veður.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir vaxandi austanátt með snjókomu og skafrenningi, en úrkomulítið NA-lands. Hlýnandi heldur í bili.
Á miðvikudag (fullveldisdagurinn):
Líklega hægir vindar með éljum á víð og dreif og fremur kalt í veðri.