Erlent

Meina óbólusettum aðgang að börum, kvikmyndahúsum og öðru

Samúel Karl Ólason skrifar
Angela Merkel og Olaf Scholz, sem er fyrir aftan hana, funduðu með forsætirsráðherrum Þýskalands í dag og komust þau að samkomulagi um harðar aðgerðir vegna hraðrar útbreiðslu Covid-19 þar í landi.
Angela Merkel og Olaf Scholz, sem er fyrir aftan hana, funduðu með forsætirsráðherrum Þýskalands í dag og komust þau að samkomulagi um harðar aðgerðir vegna hraðrar útbreiðslu Covid-19 þar í landi. AP/John Macdougal

Ríkisstjórn Þýskalands hefur sett fjölmargar og stórar þúfur í veg óbólusettra Þjóðverja. Angela Merkel, fráfarandi kanslari, og Olaf Scholz, verðandi kanslari, ræddu við ríkisstjóra Þýskalands í dag og samþykktu þau harðar aðgerðir gegn mikilli útbreiðslu Covid-19 í Þýskalandi um þessar mundir.

Meðal annars verður óbólusettum meinaður aðgangur að flestum fyrirtækjum, að matvöruverslunum og apótekum undanskildum. Þá verður knæpum lokað, fjöldi áhorfenda á fótboltaleikjum takmarkaður og þing Þýskalands mun greiða atkvæði um bólusetningarskyldu snemma á næsta ári.

Ástandið hefur farið hratt versnandi í Þýskalandi og er sú bylgja (fjórða) sem gengur yfir landið núna sögð sú versta frá upphafi faraldursins. Samkvæmt frétt BBC dóu 388 Þjóðverjar í gær vegna Covid-19.

Þá óttast sérfræðingar að omíkron-afbrigði kórónuveirunnar muni gera vont ástand verra á næstu misserum en það er sagt smitast auðveldar manna á milli en delta-afbrigðið. Óttast er að allt að sex þúsund manns verði á gjörgæslu um jólin.

Angela Merkel sagði í dag að heilbrigðiskerfi landsins væri undir gífurlegu álagi

DW hefur eftir Olaf Scholz að fólk eigi að láta bólusetja sig og fá sér örvunarskammt. Þannig komist Þjóðverjar í gengum þessa krísu. 69 prósent þjóðarinnar eru bólusett en það er með því lægra í Vestur-Evrópu.

Sérfræðingar í Þýskalandi segja umfang faraldursins í Þýskalandi vera eins mikið og það er vegna óbólusettra og hafa gagnrýnt ríkisstjórn landsins fyrir hægagang. 

Þær aðgerðir sem tilkynntar voru í dag eru samkvæmt DW eftirfarandi:

-Óbólusettum meinaður aðgangur að ýmsum verslunum, börum, kvikmyndahúsum og öðrum stöðum.

-Farið verður í frekari skimun meðal bólusettra.

-Grímuskylda í skólum.

-Þýska þingið mun greiða atkvæði um bólusetningarskyldu snemma á næsta ári. Mögulega í febrúar.

-Börum, tónleikahúsum og öðrum stöðum þar sem margir koma saman verður lokað þar sem nýgengi smita fer yfir 350.

-Mest fimmtán þúsund manns mega sækja fótboltaleiki. Á innanhúsviðburðum verður hámarksfjöldinn fimm þúsund.

-Samkomur óbólusettra verða takmarkaðar við eina fjölskyldu.


Tengdar fréttir

Omíkron greinst í tólf löndum EES

Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, omíkron, hefur greinst í tólf löndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Fimmtíu og sjö einstaklingar hafa greinst smitaðir af veirunni en allir eru þeir með væg einkenni Covid-19. 

Muni skýrast á næstu vikum hvort herða þurfi aðgerðir vegna Ómíkron

Sóttvarnalæknir segir að það muni skýrast á næstu vikum hvort grípa þurfi til frekari aðgerða vegna útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Það eigi enn eftir að koma í ljós hvernig afbrigðið hagar sér en svo virðist sem það sé meira smitandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×