Austlægar áttir og væta með köflum Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2021 07:53 Kólnar í veðri í bili, en víðáttumikil lægð nálgast úr suðri með hlýnandi veðri annað kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir austlægum áttum í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndum, og vætu með köflum. Úrkomulítið verður þó um landið norðvestanvert.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði um frostmark og falli því úrkoman sem snjókoma, slydda eða rigning allt eftir hitastigi, en mildast verður við suður- og austurströndina. „Snýst í hægari norðaustanátt í kvöld með dálitlum éljum. Birtir víða til í nótt, en áfram dálítil él á víð og dreif fyrir norðan fram eftir degi á morgun. Kólnar í veðri í bili, en víðáttumikil lægð nálgast úr suðri með hlýnandi veðri annað kvöld. Á laugardag má því búast við suðaustan og austan hvassviðri eða storm með rigningu í flestum landshlutum.“ Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan átt, víða 5-10 m/s. Dálitlar skúrir eða slydduél norðan- og austanlands með hita 0 til 4 stig. Þurrt og bjart að mestu um landið sunnanvert og vægt frost. Vaxandi suðaustanátt og hlýnar vestantil um kvöldið. Á laugardag: Suðaustan og austan 15-23 m/s og rigning eða slydda. Talsverð úrkoma suðaustantil, en úrkomulítið á Norðurlandi. Heldur hægari suðlæg átt um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Á sunnudag: Suðvestan 10-18 m/s, hvassast austantil. Víða skúrir, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 5 stig. Á mánudag: Suðlæg átt yfirleitt 5-10 m/s. Skúrir og hiti 0 til 5 stig, en þurrt norðaustan- og austanlands og vægt frost þar. Á þriðjudag: Austlæg átt með rigningu, en snýst svo í suðvestanátt með skúrum. Hiti um og yfir frostmarki. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga eða bretyilega átt. Rigning með köflum um sunnanvert landið og dálítil snjókoma norðvestantil, annars þurrt. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Fleiri fréttir Rigningarveður í kortunum Slydda og snjókoma fyrir norðan Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gæti sést til eldinga á vestanverðu landinu Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Óvenjulegt að allt landið sé undir Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Víða allhvasst og éljagangur Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Stórhríð og foktjón í vændum Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Djúp lægð beinir illviðri til landsins Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Sjá meira