Innlent

Ekkert ferðaveður fram á kvöld

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vindaspáin á hádegi í dag.
Vindaspáin á hádegi í dag. Veðurstofan

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til klukkan sex í kvöld á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra.

Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að ekkert ferðaveður sé á þessum slóðum.

Búast megi við suðvestan 20-28 m/s og slyddu eða snjókomu. Vindhviður staðbundið geti farið yfir 40 m/s. Búast má við lélegu skyggni og slæmum akstursskilyrðum og afmörkuðum samgöngutruflunum, með öðrum orðum, ekkert ferðaveður.

Gul viðvörun vegna veðurs er einnig í gildi á Faxaflóa og á hálendinu. Við Faxaflóa má búast við suðvestan 18-25 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig má búast við snjókomu eða slyddu á fjallvegum. Reiknað er með að afmarkaðar samgöngutruflanir séu líklegar.

Á hálendinu má reikna með suðvestan 20-28 m/s, hvassast norðan jökla. Snjókoma og síðar él með lélegu skyggni.

Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands kemur fram að kalt loft frá Grænlandi sæki nú að landi og að það kólni smám saman næstu daga.

Staðan á hádegi í dag.Veðurstofan

Kuldanum fylgir óstöðugt loft á Grænlandssundi en hæð yfir Írlandi veldur háum þrýstimismuni, eða þrýstibratta yfir landinu sem viðheldur hvassviðri þar til seint á morgun.

Í dag og á morgun er útlit fyrir snarpa suðvestanátt víðast hvar á landinu og éljaveður, en þurrt að kalla austan og suðaustanlands. Þá er útlit fyrir hríð á fjallvegum, einkum norðvestantil og snarpar vindhviður til fjalla á norðanverðu landinu fram eftir degi.

Í kvöld bætir í úrkomu um tíma á Suður og Suðausturlandi, rigningu eða slyddu, en líklega snjókomu vestan Þjórsár, þessi úrkomubakki hrekst til suðausturs í nótt, og við tekur éljaloft í kjölfarið.

Á mánudag er hins vegar útlit fyrir skaplegra veður, bæði hægviðrasamari og kaldari.

Veðurhorfur á landinu

Suðvestan 15-25 m/s, hvassast norðvestantil. Allvíða él en úrkomulítið um landið austanvert. Dregur smám saman úr vindi síðdegis en bætir heldur í úrkomu á sunnanverðu landinu undir kvöld. Hiti 2 til 6 stig norðan og austantil annars um eða rétt yfir frostmarki. Kólnar víðst hvar seint í dag.

Suðvestan og vestan 10-18 m/s á morgun með éljahryðjum um landið vestanvert en áfram þurrt austantil á landinu. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Suðvestan 13-20 m/s, hvassast til fjalla. Él en úrkomulítið um landið austanvert. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.

Á mánudag:

Fremur hæg suðvestlæg átt, skýjað með köflum og frost 0 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt með slyddu og síðan rigningu sunnan og vestanlands um kvöldið og hlýnar en austlægari og snjókoma á Vestfjörðum.

Á þriðjudag:

Hvöss suðvestlæg átt með rigningu og síðar slyddu en norðvestlæg átt og snjókoma síðdegis. Lægir og kólnar um kvöldið.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir noðrlæga átt og snjókomu en styttir upp um kvöldið. Talsvert frost.

Á fimmtudag:

Hægt vaxandi suðvestanátt, og smám saman hlýnandi veður en hægvirði og talsvert frost austantil.

Á föstudag:

Líkur á hvassir suðvestanátt með rigningu og ört hlýnandi veðri en vestanátt og éljum um kvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×