Tottenham heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag, en Antonio Conte, þjálfari Tottenham, þjálfaði Chelsea frá 2016 til 2018.
Harry Kane segir að liðið verði að nýta sér það að eins góður stjóri og Conte sé við stjórnvölin til að koma sér aftur í hóp þeirra bestu á Englandi, og tryggja sér um leið keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á ný.
„Hann er einn besti þjálfari í heimi,“ sagði Kane um Ítalska knattspyrnustjórann í samtali við Sky Sports.
„Við höfum ekki alveg náð þeim hæðum sem við sem klúbbur höfðum vonast eftir á seinustu árum. Þetta er stórt tækifæri til að nýta það sem við höfum í höndunum.“
„Hann er þjálfari sem krefst mikils af þér. Hann er að gera allt sem í hans valdi stendur og sem leikmenn höfum við svarað því mjög vel. Það eru allir að leggja eins hart að sér og þeir geta til að ná árangri. Það er aðalmarkmið allra hjá félaginu.“
🗣 "We need to take advantage of having one of the best managers in the world." 🌍#THFC's Harry Kane speaks on the impact Antonio Conte has had since joining the club 👇 pic.twitter.com/rSXbMJEXzg
— Sky Sports News (@SkySportsNews) January 23, 2022
Síðan Tottenham komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2019 hafa margir lykilmenn liðsins horfið á braut og þeir leikmenn sem hafa komið í staðinn átt erfitt með að fylla í þau skörð sem skilin voru eftir. Nú er rétt rúm vika eftir af félagskiptaglugganum í janúar, en Kane hefur litlar áhyggjur af því, en segir þó að liðið þurfi að passa sig að falla ekki enn lengra aftur úr.
„Leikmenn koma og fara og stundum hefur það slæm áhrif á liðið. Þjálfarar koma líka og fara og það tekur tíma að aðlagast.“
„Staðreyndin er sú að það eru svo mörg góð lið að reyna að brjótast upp í þessi efstu sex sæti, sérstaklega í ensku úrvalsdeildinni. Það eru allavega átta eða níu lið að berjast um þessi sæti.“
„Ef þú klikkar á einum eða tveim hlutum þá geturðu fallið svolítið aftur úr og það er kannski það sem kom fyrir okkur. Þannig að við þurfum að passa okkur að falla ekki enn lengra aftur úr,“
„Okkur líður eins og við getum gert það, sérstaklega eftir að Conte tók við,“ sagði Kane að lokum.