Topplið Real Madrid þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið heimsótti Villareal á erfiðan útivöll í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Gestrinir frá Madríd voru meira með boltann í dag og virkuðu líklegri til að skora. Ekkert varð þó úr því og því varð nðurstaðan markalaust jafntefli.
Madrídingar voru komnir með ágætis forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar, en liðið hefur nú gert tvö jafntefli í seinustu þremur leikjum sínum.
Þeir sitja þó enn á toppi deildarinnar með 54 stig eftir 24 leiki, fjórum stigum meira en Sevilla sem situr í öðru sætinu. Villareal situr hins vegar í fimmta sæti deildarinnar með 36 stig og er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.