Innlent

Enn eitt slysið á Sogavegi og sumir kenna hraðahindrun um

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi á Sogavegi rétt eftir miðnætti í nótt. Lögreglumenn standa fyrir framan bíl ökumannsins og ráða ráðum sínum. Ökumaðurinn hafði á þessum tímapunkti verið fluttur af vettvangi.
Frá vettvangi á Sogavegi rétt eftir miðnætti í nótt. Lögreglumenn standa fyrir framan bíl ökumannsins og ráða ráðum sínum. Ökumaðurinn hafði á þessum tímapunkti verið fluttur af vettvangi.

Íbúar í og við Sogaveg í póstnúmeri 108 í Reykjavík sjá hlutina ólíkum augum þegar þeir velta fyrir sér hörðum árekstri sem varð um miðnætti í gærkvöldi. Þá var bíl ekið á þvílíkum hraða yfir hraðahindrun að hann hafnaði á og skemmdi þrjá bíla sem lagt var í götunni.

Fram kom í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun að karlmaður hefði ekið bíl á þrjár mannlausar bifreiðar á Sogavegi. Ökumaður hafi verið fluttur á slysadeild til innlagnar vegna gruns um háorkuáverka.

„Altjón varð á tveimur bifreiðum en skemmdir á hinum tveimur voru talsverðar. Ökumaður er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum vímuefna,“ segir í dagbók lögreglunnar.

Ólíklegt má telja að þessi jeppi fari fljótlega aftur á götuna eftir að ekið var á hann af þvílíkum krafti í nótt.Íbúagrúppan 108 Reykjavík

Umræða hefur skapast meðal íbúa við Sogaveg og sýnist sitt hverjum. Sumir segja þetta enn eitt dæmið um að umrædd hraðahindrun sé stórhættuleg og nefna fleiri dæmi þar sem bílar „fljúgi“ af hraðahindrunum.

„Sýnir bara hvað hraðahindranir geta verið hættulegar. Bílarnir takast á loft,“ segir einn íbúinn.

Aðrir botna ekkert í slíkum hugsanahætti og velta fyrir sér hvort hugmyndin sé virkilega sú að fjarlægja hraðahindrun í götu með 30 kílómetra hámarkshraða svo fólk undir áhrifum geti stundað þar ofsaakstur.

Umdeilda hraðahindrunin við Sogaveg og tveir skemmdir bílar fyrir aftan.Vísir/Vilhelm

Íbúi í hverfinu sem fréttastofa ræddi við varð vitni að atvikinu. Íbúinn segir bílinn hafa verið á mjög mikilli ferð og lætin verið einkar mikil þegar bíllinn skall á mannlausu bílunum.

Fleiri dæmi eru um slys á Sogavegi eða að hurð hafi skollið nærri hælum. Þannig var ekið á ökumann vespu á Sogavegi í ágúst 2019. Nokkrum vikum fyrr fór jeppi fram úr fólksbíl sem stöðvað hafði ferð sína á meðan börn ætluðu yfir á gangbraut

Atvikið náðist á myndband.

Raunar reynist sumarið 2019 hafa verið stórhættulegt á Sogavegi því í júní það ár var ekið á níu ára stúlku í götunni.


Tengdar fréttir

Ekið á vespu á Sogavegi

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var ökumaður vespunnar fluttur á slysadeild til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×