Fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun að þar með ljúki einum erfiðasta vetri í vinnslukerfi Landsvirkjunar, en strax í desember þurfti fyrirtækið að grípa til takmarkana í afhendingu á rafmagni vegna lélegs vatnafars.
Nægur snjór er núna sagður vera á hálendinu eftir mikla úrkomu í vetur. Hlýindi og rigning á landinu í lok mars og nú aftur um páskana hafi svo skilað hluta snjósins í miðlunarlónin.
Að sögn Landsvirkjunar er þetta að gerast tiltölulega snemma vors. Horfur um fyllingu miðlunarlóna sé nú góð, en jökulbráðnun seinni hluta sumars ákvarði hvort þau nái að fyllast alveg í haust.